Komið öll sæl!

Loksins tókst mér að hafa uppi á vefstjóra og hann samþykkti að ég yrði admin hér á smásögum. Ég vonast til að það muni hafa einhverja breytingu í för með sér, td. að það muni flýta mjög fyrir samþykkt greina.

Ég ætla mér þó ekki að fara að gera einhverjar stórvægilegar breytingar, í það minnsta ekki án samþykkis Deadalus.

Því miður þá þarf ég, starfs míns vegna, að fara út á land í nokkra daga en ég reyni að komast á netið eins oft og ég get. Ætti að vera kominn aftur um mánaðarmótin.

Kveðja
Tmar

PS. Endilega sýnið mér smá þolinmæði á meðan ég er að ná tökum á þessu….það gefst nefnilega ekki mikið rými fyrir mistök :)