Kæru smásagnahugarar,

Gleðilegt sumar!

Með byrjun sumars kemur væntanlega prófatörn hjá flestum ykkar, og óskum við ykkur öllum góðs gengis í því. Það er ekkert betra til að skerpa á heilanum heldur en smá stress og álag. Svo vonum við að þið verðið rosalega dugleg að senda inn sögur þegar því er lokið, og sjálfsögðu að þið lesið sögur annarra og gefið nytsamlega gagnrýni. Eins og einhver sagði, með nýrri árstíð kemur nýr innblástur.

Kær sumarkveðja,
Stjórnendur á /smasogur.