Sæl öll,
Takk fyrir frábæra þátttöku í jólakeppninni. Vona að þið hafið öll reynt mikið á ykkur við að fara eftir sérviskunni í mér.

Það er búið að búa til könnun og þið kjósið þá sögu sem ykkur fannst best. Ekki kjósa sögur bara vegna þess að vinir ykkar gerðu þær, það er bara alls ekkert skemmtilegt. Endilega farið líka yfir skilmálana á keppninni áður en þið kjósið, og kjósið söguna sem ykkur finnst vinna best með verkefnið.

Það eru engin verðlaun í boði, enda skiluðu þau sér aldrei síðast. Sá sem vinnur hlýtur bara þann heiður, og er því enn mikilvægara að þið kjósið bara þá sögu sem ykkur finnst best. Það græðir enginn neitt á klíkuskap í þessu tilfelli.

Verið sanngjörn,