Vegna fjölda innsendra greina hef ég verið að samþykkja tvær á dag til þess að biðtíminn haldist sem stystur og til þess að keppnissögurnar komist að sem fyrst.

Ég hef ákveðið að hætta þessu. Í staðinn ætla ég að láta keppnissögur ganga fyrir þangað til að innsendingarfrestur á þeim er búinn. Það verður semsagt samþykkt ein saga á dag eins og áður. Eftir það verða hinar sögurnar samþykktar í réttri röð.

Þetta ætti ekki að valda ykkur miklum óþægindum, vildi bara láta vita svo fólk væri ekki farið að efast um að sögurnar sínar hefðu komist til skila.