Daginn,

Eftir langa bið hef ég fengið stjórnendastöðu hér á áhugamálinu Smásögur. Fyrri adminar voru frekar lítið inni og sinntu áhugamálinu mjög lítið vegna anna, en það mun breytast.

Þið tókuð kannski eftir því að greinar komu seint inn, en ég get fullvissað ykkur um að það heyrir aðeins fortíðinni til.

Ég vil samt sem áður hvetja ykkur til að senda inn greinar, kannanir, myndir, þræði og atburði.

Ég bið því að heilsa ykkur rithöfundum smásagna.

Kveðja,
Hrannar Már.