Laminn af 6 ára stelpu.

Siggi lemdu hana lemdu. Nei strákar ég ætla ekki að lemja 6 ára stelpu.
Strákarnir stóðu hliðinná mér og hvöttu mig til að lemja 6 ára stelpu.
Bara út af hún kýldi mig í magann En hún var 6 ára. Það var nú svolítið niðurlagandi að vera laminn af 6 ára stelpu, en mér fannst nú ekki að maður ætti að berja hana.

En strákarnir sögðu mér að gera það svo ég hlýddi þeim.
Ég lyfti hnefanum hátt upp í loft og sveiflaði honum. En þegar hann var alveg að hafna í andliti stelpunnar greyp hún í hnefann á mér og snéri. Þetta var svo vont svo rosalega vont.

Ég féll á götuna og þá sparkaði hún í mig. Sparkaði í andlit og maga. Þetta var svo rosalega vont.

Hún labbaði í burtu, og allir krakkarnir hlóu af mér. Hvað átti ég að gera. Ég ákvað bara að liggja ennþá á jörðina og horfa niður. Svo fóru krakkarnir og ég hljóp heim.

Ég var 15 ára frekar massaður og sterkur drengur, en samt lamdi 6 ára stelpa mig. Djöfull var það nyðurlægandi.