Ég gékk þungum skrefum niður í drungalegann miðbæinn með Adidas íþróttatösku í hendinni. Allt virtist vonlaust.

Sýnin sem ég sá um morgunin var sem brend í huga minn…. Fallega eiginkonan mín í ástarleik með besta vini mínum…. Hvað hafði ég gert til að verðskulda þetta.

Ég settist þunglamalega niður á lúinn bekkinn í Hljómskálagarðinum og velti fyrir mér að enda þetta vonlausa líf.

Útundan mér tek ég eftir að ung stúlka sest á bekkinn á móti… Augun okkar mætast og hún brosir fallega svo skín í hvítar fallegar tennurnar.

Allt í einu styttir upp í mínum drungalega heimi. Heimurinn var kannski ekki svo vonlaus.

Ég horfi á hagkaupspokann og ákveð að reyna að byrja nýtt líf. Pokinn með blóðugum fötunum endar í ruslinu og ég geng til ungu stúlkunar og býð henni smók.
“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”