Mánudagur
Ég vaknaði, fór í vinnuna. Yfirmaðurinn kallaði á mig og sagði að ég ætti að taka mér frí í nokkra daga. ÞETTA ER RUGL! ÉG SELDI ÞESSUM KRÖKKUM EKKI DÓP! Fór heim, ég ætla að kæra bæinn. Þeir gera í því að reyna að skemma fyrir mér. Andskotans aumingjar, ég stal þessum lyklum ekkert!

Þriðjudagur
Ég ætla að kaupa Esjuna og búa til búðina USS. Þið sjáið ekki allar 3 hæðirnar. Ertu að hlægja að mér!? Ég tek Eyrina og breyti henni í “Ghetto”. Tek alla bílana, þjappa þeim saman og bý til flugvélar og vopn úr þeim.

Miðvikudagur
Ég fór til Reykjavíkur, stuðið þar er helmingi ódýrara en hérna á Akureyri. Fékk að gista hjá Sævari Ciesielski. Hann er eins og Manson.

Fimmtudagur
Kenning: Karlmenn koma af öpum en kvennmenn koma af T-REX. Jú sjáiði til, T-REX var ekki kjötæta heldur grænmetisæta. Safnaði hnetum í pokann.

Föstudagur
Ég ætla að halda concert. Er ekki hægt að fá sona græju sem breytir hljóðinu í gítarnum? Ég get skipt við ykkur, ég á 150 spólur með Tomma og Jenna og Commandore64 tölvu með mörghundruð leikjum. Er búinn að fá Oddvitann.

Laugardagur
Er ég dauður? Það eru allir að segja það við mig! Ég er ekkert búinn að fá mér sveppi. Þetta er ekkert skemmtilegt.

Sunnudagur
Er ekki.
<br><br><a href="