Ahh, Rússland, þvílíkt land! Þetta verður talsvert löng og erfið lesning þannig að ég ráðlegg ykkur að laga kaffi og það mikið af því og undirbúa ykkur vel því þið þurfið mikinn tíma og talsverða þolinmæði ásamt ró og næði þannig að þið getið bæði lesið og búið til í huga ykkar myndir af öllu sem ég skrifa og þannig ferðast með mér um Rússland. Ég ætla að skilja eftir nokkrar auðar línur þannig að þið hafið tíma til að undirbúa ykkur.






Jæja, þá eruð þið klár í slaginn er það ekki? Kaffikannan full af rótsterku kaffi, krakkaormarnir loksins komnir í pössun til tengdamömmu (sem var alls ekki hrifin af því að þurfa að sitja uppi með allann skarann), makinn farinn út að leika tennis eins og lítill krakkagrislingur og þú kominn í tælandi stellingar í glæsilegum hægindastól sem þú hefur sennilega fengið á útsölu einhvers staðar ja eða kannski í kolaportinu, jæja nóg um það, eins og ég sagði að þá verður það ekki auðvelt að lesa þessa sögu þannig að ef þú ert ekki mikill lestrarhestur og ert að gugna á þessu, að þá hættu bara strax að lesa og farðu út að leika þér, en ef þú heldur að þú sért tilbúinn að lesa að þá skalt þú byrja á því að slaka á og anda djúpt að þér og anda svo hægt og rólega frá þér aftur.

Því næst skalt þú athuga hvort útidyrnar séu ekki örugglega læstar þannig að það komi enginn óvænt inn og trufli þig, þegar þetta er búið þá skalt þú fara og taka símann úr sambandi svo enginn hringi og trufli þig í miðri lesningu og þegar þú hefur lokið því líka þá skalt þú bara setjast aftur niður í þennann líka glæsilega hægindastól sem þú hefur sennil….. ha hvað segirðu var ég búinn að segja þetta? Ok, ég skil. Áfram með smjörið.

Nú þá skaltu bara draga aftur að þér andann og slaka mjög vel á því það jafnast ekkert á við góða slökun áður en maður tekst á við eitthvað sem krefst athygli og einbeytni. Það væri gott ef þú gætir sett fæturna upp á skammel til að slaka enn betur á og enn betra væri að hafa rólega tónlist í bakgrunninn, ah, þetta var betra nú skaltu bara loka augunum augnablik og anda aftur rólega að þér og enn rólegra frá þér síðan skulum við fara að byrja á ferða sögunni minni, okey?
Heyrðu er allt í lagi með þig? Halló heyrir þú í mér? Nei hættu nú alveg þvílíkur dónaskapur að sofna bara sísvona þegar ég er að fara að segja rosalega spennandi ferðasögu!!! Allt í lagi þá segi ég þér hana bara ekki neitt og hana nú, ég er farinn! Bless.