Af og til þá hef ég dottið inn á þetta áhugamál hérna á Huganum og alltaf verð ég fyrir jafn miklum vonbrigðum. Smásögurnar sem eru birtar hérna eru bara rusl. Þetta er þriðja klassa fantasíupár. Hættið nú að reyna sífellt að stæla einhverja aðra höfunda. Og í öllum bænum stæliði frekar einhverja góða höfunda. Ég veit að þið verðið ekki sammála mér í þessu en Rowling og Tolkien eru frekar minniháttar höfundar í heimi bókmennta. Fariði á bókasafnið og biðjið bókasafnsfræðingana að fræða ykkur. Ef það er einhver með sverð eða byssu á framhlið bókarinnar ekki lesa hana.