Það byrjar með fikti en endar með ósköpum. Þannig var það allavegana í mínu tilfelli. Maggi, æskuvinur minn, mætti með þetta í skólann og sýndi okkur strákunum. Leyfði okkur að prófa einum af öðrum. Ég hins vegar sagði nei, vissi hvaða afleiðingar þetta gæti haft, hversu mikið þetta gæti skemmt fyrir mér, vissi hvað pabbi og mamma myndu segja. En strákarnir tóku það ekki gilt, - Kommon, ekki vera þessi kona, hreytti Pétur í mig, - Ekki vera þessi félagskúkur, sagði Aron.

Svo ég prófaði, bara lítið fyrst en skammtarnir stækkuðu alltaf smám saman. Skammtarnir stækkuðu og áhrifin vörðu lengur. Ég var orðinn verstur af okkur í vinahópnum, þeir rétt fiktuðu með þetta meðan það leið varla stund þar sem ég var ekki í vímu. Þeir sem vissu að ég var að þessu voru farnir að horfa á mig, líta mig hornauga. Þeim fannst líka skrítið þegar ég mætti með þetta í partý, farinn að taka þetta framyfir íþróttirnar, ég var jafnvel með þetta í tímum.

Það var akkúrat þar sem þetta uppgötvaðist. Björn stærðfræðikennari var búinn að taka tvo tíma í að kenna liðun og þáttun, skólinn var að klárast svo ég ákvað að taka smá forskot á sæluna. Ég seildist í vasann minn og lagði efnið á borðið, dró andann djúpt og byrjaði. Björn stöðvaði í miðjum klíðum.

- Heldur þú að þú hafir einhvern rétt á að gera þetta hér í tíma? Veistu hvaða áhrif þetta hefur á samnemendur þína sem eiga nú nógu erfitt að átta sig á efninu fyrir?
- Kommon, þetta var nú ekki….
- Engar enskuslettur hér! Ég held ég verði bara að gera þetta upptækt, svonalagað gengur náttúrulega ekki!
- Æji manni, sýndu smá skilning…

En Birni varð ekki haggað. Þennan skammt fengi ég ekki aftur, þúsundkall farinn til spillis. Á leiðinni heim kom ég höndum yfir meira. Sá skammtur hvarf samt enn fyrr en skammturinn á undan. Mamma tók á móti mér í dyrunum, Guðlaug skólastýra hafði klagað í hana.

- Ertu með meira af þessum óþverra, sonur?
- Sko, hjaddna…
- Þú kemur ekki með neitt þessu slíkt í mín hús, skilurðu það?
- Jájá, ekkert mál, muldraði ég og gerði mig líklegan til að strunsa framhjá henni og upp í herbergið mitt. En hún var á öðru máli. Hún þegar kallað á pabba sem leitaði á mér, athugaði hvort ég væri að reyna að smygla einhverju inn og auðvitað fann hann það sem hann leitaði að undireins. Hann öskraði á mig að drulla mér upp í herbergið mitt og gleyma því að ég fengi að éta þetta kvöldið.

Ég gerði einfaldlega eins og hann sagði enda átti ég eitt stykki uppi í herbergi. Ég fann kubbinn og einnig vasaljós, dró sængina yfir haus og hófst handa. Byrjaði á bláu hliðini og vann mig síðan upp, lag eftir lag og eftir mínútu var hann tilbúinn, ég ruglaði honum aftur og leysti hann á ný, ruglaði honum….