Það er kaldur febrúar mánuður. Ég lít á klukkuna, hún er 05.23. Ég finn að ég er mjög þyrst, ég stend upp og geng á ísköldu gólfinu í gegn um herbergið og opna dyrnar. Frammi er spilað háværa tónlist. Ég andvarpa og geng eins hljóðlátlega og ég get inn á baðherbergið. Ég loka á eftir mér og skrúi frá vatninu. Á meðan vatnið kólnar heyri ég að einhver reynir að opna baðherbergið, ég fæ gæsahúð og held í mér andanum á meðan gengið er í burtu frá hurðinni. Ég halla mér undir kranann og fæ mér nokkra sopa af vatninu. Svo slekk ég á vatninu, hika um stund, en opna síðan hurðina og geng í gegnum hávaðamikla tónlistina að herberginu.

Allt í einu heyri ég öskur á neðri hæðinni. Ég frýs, en sný mér svo hikandi að stiganum og geng hægt í áttina að honum. Svo heyri ég að einhver hleypur upp stigann, ég reyni að hlaupa í burtu en get alls ekki hreyft mig, síðan sé ég mömmu mína koma, ég stari á andlitið hennar sem er alblóðugt. Hún grípur í mig og ég hlaupi með henni inn í herbergið mitt þar sem hún segir mér að setja föt og nauðsynlega hluti ofan í tösku. Ég geri það á meðan hún hleypur inní herbergið sitt og gerir það sama.

Við læðumst við niður stigann og í gegn um hávaðann í tónlistinni og reynum að hafa mjög hljótt því ‘hann’ er sofandi. Hjartað slær svo hratt að ég óttast að það muni heyrast í því, en ég held áfram á eftir mömmu sem grýpur í veskið sitt og stefnir ákveðið að útidyrunum. Við lokum á eftir okkur í andyrinu og klæðum okkur hljóðlátlega eins hratt og við getum í útiföt og opnum síðan útidyrahurðina og drífum okkur hljóðlátlega út. Svo lokum við hurðinni á eftir okkur .

Úti er mjög kalt. Við hlaupum að bílnum, troðum töskunum í skottið, setjumst í framsætin og keyrum af stað. Það er ískalt inni í bílnum og við titrum úr kulda og hræðslu. Allsstaðar eru unglingar á fyllerí og bærinn angar af sígarettureik og tónlist heyrist allsstaðar. Við keyrum áfram og vitum ekki fyrr en við erum komnar upp í Breiðholt, þá spyr ég mömmu hvert við séum að fara, þá svarar hún eftir langt hik að hún hafi ekki hugmynd um það, þannig að við höldum bara áfram.

Við stönsum loks bílinn og mamma segir að við verðum að reyna að sofna. Við erum báðar uppgefnar þannig að við sofnum báðar fljótlega. Skyndilega vöknum við báðar við að síminn hringir, mamma rótar eftir símanum en sér að ‘hann’ er að hringja svo hún leggur símann frá sér og bíður þar til það hættir að hringja. Ég sofna fljótlega aftur og vakna ekki fyrr en ég vakna við sólina. Ég lít á mömmu, hún sér að ég er vöknuð og segjir að við ætlum í ferðalag. Ég spyr hvert og hún svarar að ég megi ráða. Mér hafði alltaf langað til Danmörku og segji það við mömmu, þá svarar hún rólega að þá skildum við fara þangað og eiga betra líf.