Kæra dagbók. Fór á klósettið í gær. Var búinn að borða mikið af eldheitum mexíkóskum mat og var við það að springa út um rassinn á mér. Ég kom mér fyrir í þægilegri stellingu yfir klósettinu og gerði mig viðbúinn í svakalegustu hægðarathöfn sem mennskur hugur getur nokkurntímann ímyndað sér. Ég byrjaði á því að rembast lítillega þar til ég prumpaði örlítið. Aðeins að hita vöðvann upp. Vil ekki lenda uppi á gjörgæslu aftur. Ég var orðinn frekar heitur og tíminn var kominn til að ýta flykkinu út. Ég rembdist eins og ég gat þangað til æðarnar á enninu á mér stóðu 1cm út. Þetta var gríðarstór bykkja sem ég var að díla við þarna, ekkert lamb að leika sér við. Drumburinn þrýstist hægt og rólega út með ýlfum, samblandað öskrunum í mér. Þegar endinn á honum var kominn út var búið að brettast upp á endaþarmsopið, það hefur aldrei komið fyrir mig áður. Ég var orðinn mjög spenntur að skoða hann með eigin augum ofan í skálinni þannig að ég gaf í. Ég þrýsti honum út, og ef ég hefði verið ögn harkalegri hefði ég eflaust fengið heilablóðfall. Hann var kominn hálfur út og mér var byrjað að svíða. Lyktin var yndisleg og ég sá bara á áferðinni hve harður hann var. Tilvalið. Jæja, tími á lokahnykkinn. Ég hugsaði til Obi Wan Kenobi í Star Wars: A New Hope þegar hann var dáinn og sagði “Use the force Luke, Let go Luke”… Ég vildi ekki bregðast Kenobi sjálfum og gaf allt í þennan sprett. JÁ! Meistaraverkið dúndraði sér loksins niður og vatið gusaðist inn um rassaskoruna á mér og hreinsaði rassinn alveg. Nú þarf maður ekki að skeina sér.

Ég leit niður á útkomuna og sá þar augnakonfekt. Dökkbrúnn, helþykkur og 37cm langur kúkklumpur blasti við mér í allri sinni dýrð. Ég tók nokkrar myndir af honum á símann minn, er samt ekki búinn að upoada þeim á netið, geri það kannski seinna. Annars var ég mjög ánægður með útkomuna, og verður þessi seint toppaður. Er með rúmlega 2 terabæt af kúkamyndum sem ég hef tekið í gegnum tíðina og jafnast fátt á við þennan.