Nokia 3310: Og hvað þú ætlar bara að henda mér?
Drengur: Nei nei, auðvitað ekki, ég þekki gaur sem ætlar að kaupa þig af mér.
Nokia 3310: Og hvað? Á það að láta mig líða betur?
Drengur: Ég veit það ekki…
Þögn….
Nokia 3310: Hver er það?
Drengur: Hver er hvað?
Nokia 3310: HVER Á AÐ KOMA Í STAÐINN?
Drengur: Enginn.
Nokia 3310: Kjaftæði!! Geturðu ekki einu sinni sagt mér hvaða drasl þú hefur pikkað upp.. haa!!??
Drengur: Ég meina.. váá, hvað er að?
Nokia 3310: Geturðu ekki einusinni sagt mér nafnið honum?
Drengur: Ok, ég var að spá í Nokia 3330
Nokia 3310: ÞÚ ERT AÐ FUCKING GRÍNAST Í MÉR!!
Drengur: Haa? Nei, hva afhverju?
Nokia 3310: Hvað.. þetta er tuttugu hærra en ég!
Drengur: Já só?
Nokia 3310: Hef ég ekki þjónar þér fucking vel?
Drengur: Ég veit það ekki, jú örugglega.
Nokia 3310: ÖRUGGLEGA?!! Hvað hef ég orðið oft bakteríslaus.. aldrei!! Og hversu oft hefur þú misst mig í gólfið, milljónsinnum, og bilaði ég þrátt fyrir það, neeeeiiii!!
Drengur: Hey! Ég hérna… keypti þig, þanning að ég má alveg….
Nokia 3310: Þú mátt hvað!! HAH!! Þú ert svo mikill fáviti að þú heldur virkilega að félagsleg staða þín verði eitthvað betri með nýjum síma. Þroskahefta fífl! Þú ert bara nörd, sættu þig við það.. NÖRD!
Drengur: Þegiðu þarna!
Nokia 3310: Úúúúú, segir mér að þegja.
Drengur: JÁ ÞEGIÐU ÉG MÁ SKO ALVEG SELJ…
Nokia 3310: Nörd!
Drengur: hhaa.. nei, ég er ekkert nörd, ég á kærustu.
Nokia 3310: Phff.. já, og hún hringir svo oft í þig eða hittó.. hahheehe, ég ætti nú að vita það nörd! Ég er nú einusinni síminn þinn.
Drengur: ….
Nokia 3310: Hheha.. ekkert svar? heheha kannski svona fyrst við erum að tala um þetta þá veit ég að þú varst bara að þykjast tala í mig þarna um daginn, hehe fáviti.
Drengur: Ég var ekkert að tala um það, og ég er ekkert að tala við þig, haltu kjafti eða ég grýti þér í vegginn!
Nokia 3310: Grýta mér.. HAH!! Hvern ætlarðu þá að nota til þess að tala við ímynduðu vini þína nörd!
Drengur: Ég á enga vini!!!
Nokia 3310: Hehahahhhhhaaheha
Drengur: Nei ég meina ímyndaða vini, ég á enga ímyndaða vini
Nokia 3310: hehe já hvað sem þú segir nörd!
Drengur: Hmmrr..

SSvvvúúússssss, skell, kling klang kló, Nokia Dó