Hvenær koma endalokin. Hvenær verð ég laus úr þessu helvíti. Að hugsa sér að sumum finnst þetta skemmtilegt. Flestum sem finnst þetta skemmtilegt eru vinsælir, hafa vini sem gera þetta bærilegra. Ekki ég. Ef ég gæti bara endað þetta sjálfur. En ég verð að bíða eftir að tíminn losi mig frá prísundinni eins og allir aðrir. Hvenær, ó hvenær endar þessi stærðfræðitími.