Ég stóð í kirkjunni og baðaði út örmunum.
Bara svona til að vera með.

Ég stóð í kirkjunni og baðaði út örmunum.
Allir voru að leita að Guði, ég vildi vera með.

Svo kom guð yfir mig, og snerti mig.

Ég strunsaði brjálaður út úr kirkjunni,
enginn fær að snerta mig nema ég leyfi!
Ég staðráðinn í því að kæra hann fyrir kynferðislega áreitni.