Fékk eftirfarandi skeyti á Rithringur.is

Sæl Memory.

Sögunni þinni, “Prófraun - Mistress” var hafnað vegna þess að í reglum Rithringsins segir:

Rithringurinn mun setja lás á sögur sem innihalda erótískt efni svo að notendur undir 18 ára aldri geti ekki nálgast þær. Rithringurinn áskilur sér ennfremur rétt til að hafna innsendum sögum ef þær innihalda það sem stjórnendur telja gróft klámfengið efni.

Við höfum haldið vakandi auga á sagnabálkinum ‘Prófraun’ og verið efins um það hvort við ættum að leyfa honum að vera áfram inni á Hringnum. Þegar við vorum að fara yfir sögurnar sem verða teknar til rýni á næsta tímabili, þá stöldruðum við við söguna þína og ákváðum að lokum að þessi kafli félli algjörlega undir skilgreininguna “gróft klámfengið efni”, enda virðist tilgangur hennar aðallega vera sá að hreyfa við lesandanum kynferðislega.

Því miður teljum við að slíkt efni eigi ekki heima hérna á vefnum en óskum þér allra heilla á þessum ritvelli sem og öðrum.

Umsjónarmenn.



Þessa sögu má finna á /kynlíf… hvað finnst ykkur um þetta? Þau hafa birt hinar Prófraun sögurnar mínar… þessi er sú eina sem hefur farið í details en *pirr*

kv. Taran