Af hverju þurfti hann að koma til sögunnar? hann var ekkert í augum vinanna. En hún var hrifinn af honum. Þau voru saman í fimm vikur eða þar til hún sagði honum að hún vildi ekki að hann væri alltaf að sötra súpuna sem þau borðuðu á hverju fimmtudagskveldi og hann gekk út en kom aftur um nóttina inn um gluggann á 4. hæð. Hún vaknaði, kom að honum þar sem hann var að klifra niður. Hann sá hana aldrei. Í jarðarförinni gekk hún á milli með smákökur og sagði: Ekki gráta. Þetta var nú einu sinni bara hann Stebbi.