Er það rétt hjá mér að sem stendur er bara einn stjórnandi á þessu ágæta áhugamáli?

Er það ekki fulllítið? Hefði haldið að það væri betra að hafa 1-2 til viðbótar. Bara svona til að halda smá flæði gangandi í þessu áhugamáli.

Ég held að það myndi virka best ef að það yrðu samþykktar 2-3 greinar/sögur á dag. Til að það sé möguleikinn alla daga ársins, þá þarf að hafa fleiri en einn stjórnanda. Þó að izelord sé að standa sig með ágætum að þá getur alltaf komið upp sú staða að hann komist ekki inn á huga daglega. Við erum jú bara mannleg og eigum okkur öll - flest allavega - líf fyrir utan huga.

Þannig ég legg til, og er sjálfsagt ekkert fyrstur til, að við bætum við stjórnendum á þetta áhugamál.