uhh, já. Ég er bara að prufa mig áfram…


Ég stari útí tómið. Sit uppí rúmi falin undir sænginni og ég sé ljósið af ganginu skína undan hurðinni.
Ég er eiginlega ekki sofandi en samt nær svefni en vöku. Ég stari á fluguna sem suðar á veggnum á móti mér.

Við syntum í ánni, vatnið var heitt og sólin skein hátt á lofti. Ég sé vatnið glitra á nefbroddinum um leið og ég stekk á þig og kaffæri þig.
Ég fer niður í vatnið og þú, þú kyssir mig.

Ég ætlaði ekki að gera þetta, ég var bara að stríða þér, ég ætlaði að sleppa þér, en mér brá bara.

Kossinn hvílir enn á vörum mér þegar að ég ligg uppí rúmi starandi á vegginn.
ég get ekki útskýrt hvernig mér líður, eða ástand hjarta míns, Þú varst besti vinur minn.
Ég man eftir öllu sem við gerðum saman, frá fyrsta degi sem við hittumst, til dagsins í dag þar sem ég kvaddi þig í hinsta sinn.

Ég kvaddi með kossi og hvíslaði í eyra þitt, Ég elska þig.


Ég er ekkert sérstakega góð í stafsetningu og það leynast ef til vill málfræðivillur þarna líka :)