Drengur situr sem fastast við tölvuskjá. Neyddur til að horfa á óheilbrigða birtu frá tölvuskjánum. Augun verða fyrir meiri skaða því oftar sem drengurinn fer í tölvutíma. Honum liggur svo á að komast úr blessuðum skólanum, þetta er seinasti tíminn en hann ´má ekki fara fyrr en bjallan glymur. Þess vegna er hann hér. Hér er drengurinn staddur og er að eyða tímanum sínum í vitleysu. Skrifar bull til að eignast stig, til að hafa einhvern tilgang í að vera inn í tölvustofunni. Loks glymur bjallan. Drengur fer…