Hann fann alveg hvernig augun stungust inn í hnakkann á honum þegar hún horfði á hann. Hún hélt hann vissi það ekki, en hann var búinn að vita lengi hvernig augu hennar hvíldu á honum og fylgdu hverri hreyfingu hans. Augnaráð hennar var stingandi og augun voru ísköld þegar hann loksins taldi í sig kjark til að líta aftur fyrir sig.. Honum fannst miður hvað hann hafði gert henni en þorði ómögulega að segja henni það. Sérstaklega þegar hún horfði á hann með manndrápssvip þegar hann nálgaðist hana.
Að segja henni hvernig honum leið varð að bíða betri tíma…

>>>>>>>
Fyrsta örsagan mín eða yfirleitt fyrsta sagan mín hér á huga.is Endilega segið hvað ykkur finnst ;)