Komið öll sæl!

Hvernig er það, stelpur, eru þið ekkert að skrifa? Ég hef fengið frábær viðbrögð og fengið mikið efni sent, en stærsti hluti þess er frá karlmönnum. Hvernig væri nú ef þið tækjuð til smá pakka handa mér og senduð á verdanditimarit@hotmail.com. Það lítur svo illa út ef það eru bara strákar sem senda sögur í tímaritið, er það sú mynd sem þið viljið að bókmenntir dragi upp af ykkur!?

Annars er það að frétta að áskrifendahópurinn stækkar dag frá degi. Mikið af fólki í bókmenntaheiminum; kennarar, blaðamenn, útgáfur og þess háttar; hafa skráð sig og þetta er góð leið til að koma verkum sínum á framfæri. Enn er hægt að skrá sig til að fá blaðið sent, BLAÐIÐ ER ÓKEYPIS.

Endilega, takið nú til í skúffunni og sendið mér.