Heil og sæl öllsömul …
Ég er búinn að vera að lesa sögur hérna eftir ykkur og er virkilega hrifinn af því hvað þið eruð búin að vera dugleg við að halda þessu áhugamáli lifandi!

Ég, sem “ofurhugi” hérna, ætti bara að skammast mín fyrir það hve lítinn þátt ég hef tekið í þessu áhugamáli undanfarið en ég hef svo sem verið að skrifa á huga - bara á öðru áhugamáli ;)

Ég vona að þið haldið áfram að skrifa smásögur hérna og haldið áhugamálinu lifandi eins og undanfarið - og ég óska ykkur til hamingju með frábærar sögur hérna - ég er virkilega stoltur af ykkur og segi bara húrra fyrir ykkur!!!

Áður en ég fer að verða væminn þá ætla ég bara að hætta þessu ..
Kær kveðja:
Tigercop á kafi í smásögulestri og skemmtir sér bara vel.<br><br>Hugi.is