þegar klukkuna vantar 5 mínútur í 7 opna ég augun, ég er tilbúin í fyrsta bardagann , bardagann við klukkuna!

Ég bíð eftir því að hún byrji að ónáða mig með sínum óþolandi óhljóðum.

Aðeins 2 mínútur eftir , ég fer að lyfta hendinni, ég ætla ekki að þurfa að hlusta á þetta “garg ískur” í meira en sekúndu , ég ætla ekki að tapa!

Klukkan er að gera sig tilbúna til að vekja einhvern af sínum djúpstæða og róandi svefni bara til að minna hann á að hann lifir ömurlegu lífi, annað hvort fastur í lélegri vinnu eða fastur í menntakerfinu ég er í síðar nefnda hópnum.

Þessi all hataði hópur þarf að vakna á morgnana, mæta í skólann og þola allskyns fordóma úr öllum áttum, sérstaklega frá fólki sem er búið að gleyma því að það var eitt sinn á okkar aldri , ég þarf að gera mig tilbúna fyrir enn einn daginn sem hataður unglingur.

En fyrst þarf ég að sigra klukkuna!

Vantar bara 1/2 mínútu, hún byrjar að æfa titringinn þessi
hroka-gikkur.

Hendin mín er beint fyrir ofan takkann sem gegnir þeim tilgangi að hindra spillingu heilans frá óhljóðum klukkunnar en þegar vantar aðeins 10 sekúndur klæjar mig í nefið “æ nei” líka mjöðmin, ég reyni mitt besta að stöðva kláðann með vinstri en það er bara ekki nóg , stingandi sársauki hvetur hægri til að hjálpa til!

Klukkan er byrjuð ég hef tapað styrjöldinni , ég ætla að kaupa nýja klukku!!!



eins og þið takið eftir HATA ég vekjaraklukkuna mína!!!
Have a nice day