Saga Dauðans!!

Einu sinni var kind dauðans að lemja hest dauðans þá kom dauðinn að segja þeim að hætta að slást. Kind dauðans sagði: ,,Hey, ég nenni ekki að vera hér í helvíti” Þá sagði dauðinn: ,,Allt í lagi farðu þá upp á jörðina en vertu kominn heim fyrir kvöldmat!!” Kindin sagði allt í lagi og lagði af stað. Nú var kindin kominn á jörðina og vildi svo skemmtilega til að hún lenti á stað sem hét Garðabær! Nú hélt kindin áfram og kom að stóru ljótu húsi sem hét Garðaskóli, hún labbaði bara inn og sá þar dreng sem hét Hilmar Bjarni Hilmarsson, kindin fór að rabba við hann og svo tók hún sig til og beit hann í nefið! Hilmar varð mjög hræddur og stökk á hana, kindin stóð upp á afturlappirnar og byrjaði að kýla Hilmar, Hilmar sem hafði verið að æfa box í heilt sumar kýldi til baka og hljóp svo í burtu. Kindin byrjaði að labba um og sá ýmsa skrýtna hluti til dæmis sá hún brjálaðan kennara hlaupa á eftir strák og kallaði alltaf eitthvað JÓN BRYNJAR!!! Kindinni fannst ekkert svo gaman af þessu og var bara byrjuð að hugsa um að fara heim en allt í einu kom að henni brjálaður drengur sem hét Arnar Páll og hann var að kremja flösku með einni lúku hann sá kindina og horfði skringilega á hana. Kindin horfði á móti og sagði: ,,Hva, hefurðu aldrei séð kind áður fíflið þitt?” Hann svaraði: ,,Nei ekki svona kind!” Og allt í einu sparkaði hann í hana og kýldi hana. Kindin fór að gráta og fór heim. Þegar hún var komin heim sagði pabbi hennar við hana: ,,Jæja, var gaman á jörðinni?” Kindin svaraði:,,Nei, það var leiðinlegt ég var lamin af gaur sem heitir Arnar Páll og ég barði gaur sem heitir Hilmar Bjarni!” Djöfullinn svaraði: ,,Jæja, þá verð ég að bæta þeim á listann minn!”

________
ENDIR
..::darkjesus::..