Fuglinn Þröstur sem vann hjá Kentucky fried chicken

Einu sinni var fugl sem hét Þröstur, hann var mjög fátækur þröstur svo að hann sótti um vinnu á KFC við að djúpsteikja fugla. Þegar hann var búinn að vinna þarna í þónokkra daga og hann var að reyna að venjast lífinu sínu eftir að hafa flutt að heiman frá mömmu sinni, honum líkaði vel í vinnunni og fannst mjög gaman að vinna á Kentucky!

Þegar hann var ekki búinn að heyra í mömmu sinni í viku ákvað hann að hringja í hana úr vinnunni og honum brá þegar hann heyrði hringinguna úr símanum hennar inni á staðnum. Þr0stur hélt að hún væri að borða á KFC og hann ætlaði að heilsa uppá hana og hann leitaði í matsalnum en fann engann og þá hélt hann að þetta hafi verið tilviljun og að hann hafi hringt í vitlaust númer hjá manni sem var að borða þarna. Hann hringdi aftur og þá heyrði hann í símanum hennar og hann skellti ekki á og fór að leita að símanum hennar og þá sá hann símann hennar liggja á gólfinu fyrir aftan djúpsteikingarpottinn sem djúpsteikir franskarnar og við hliðiná svörtum rulsapoka. Þröstur hélt þá að hann hafði óvart tekið símann hennar með sér í farangrinum þegar hann flutti að heimann.

En svo þegar hann ætlaði að taka símann upp þá rakst hann í svarta ruslapokann og pokinn brotnaði og það rann blóð úr honum og þrastarhjarta skaust út úr pokanum beint í andlitið á Þresti, þá fattaði hann að þetta var ekki ruslapoki heldur mamma hans sem hann Þröstur hafði óvart brennt á grillinu og drepið. Hann fattaði það nefnilega alltíeinu seinna að fyrir viku síðan var nýjung á KFC, það var nefnilega hægt að fá djúpsteikta þresti í matinn og líka þrastarborgara með sinnepi og súrum gúrkum.

Þresti leið mjög illa yfir þessu og hoppaði ofaní djúpsteikingarpottinn og sauð sjálfan sig útaf vorkunn en þá hrindi gemsinn hans þrastar skömmu seinna, þá var mamma hans að hringja í hann. Þá hafði hann ekki grillað mömmu sína heldur tvíburasystur mömmu hans sem að Þröstur var búinn að reyna að drepa í 5 ár því að hann hataði hana og setti það sem sitt lífsmarkmið að drepa Guggu, systur mömmu hans en um leið og hann drap systur mömmu hans þá drap hann sjálfan sig, mamma hans Þrastar var svo sorgmædd að hún drap manninn sinn og framdi svo sjálfsmorð….


þetta kallar maður stóran alvarlegan miskilnig hjá starfsfólkinu á KFC

…..