Hæ, ég heiti Ippi! Ég er ljótur og borða ullarpeysur! Mér finnst
gott að borða fótbolta og drekka lýsi! Ég skal segja ykkur frá
einu atviki sem átti sér stað hér ákkúrat í þessu herbergi og
nákvæmlega þar sem hesturinn minn hann Hjálmar stendur!
Hjálmar er sniðugur hestur því hann er úr plasti! En hér
gerðist svolítið skrýtið og meira að segja svo skrýtið að ég
ætla að segja frá því
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA! he he þetta var
svolítið skrýtið! En allavega þá kom hann Hjálmar ekki heim
þennan dag og ég var orðinn hræddur um hann. Hann
sagðist bara ætla út að kaupa sér sykur! En hann kom ekki
aftur! Svo að ég leitaði úti í garði og undir rúmi og undir
koddanum og undir krúsinni minni og undir blóminu mínu og
svo leitaði ég líka úti í Þórsmörk! En hvergi var hann Hjálmar
minn. Heyrðu þá hringdi ég í lögguna og sagði: Já heyrðu
vinur minn hann Hjálmar er týndur! þá sagði löggann: Hvernig
lítur hann út? Þá sagði ég: Hann hefur fjóra fætur og er með
tagl og fax og hann er röndóttur með grænum og gulum
röndum! Þá sagði löggan mér að hætta að drekka kaffi og
skellti svo bara á! Þá varð ég rosalega reiður og fór út í stíu og
talaði bara við litlu sætu hænurnar mínar sem heita ljón og fíll!
Allt í einu heyrði ég kallað: Ippi! Ippi! Ippi! og ég heyrði að þetta
var hann Hjálmar og hann var grátandi og ég öskraði:
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA! HJÁLMAR! en allt í einu
datt allt í dúnalogn og ég sagði:Vá mér langar í ÍS og þá spratt
Hjálmar út úr runna og ég kýldi hann og sagði honum að gera
þetta aldrei aftur og svo fórum við út í búð og keyptum okkur
ís!
..::darkjesus::..