Þarna sat hún. Einbeitt á svip. Á stól í margmenninu. Sú besta sem hafði fyrir hann komið. Hans hjartans yndi. Æskuástin. Eldrautt hár hennar bundið í þykka fléttu. Sem rann meðfram grönnum hálsinum. Vinstra megin. Hann læddist varlega upp að henni. Eins og þegar köttur veiðir mús. Ofurhægt. Hljóðlaust. Hann var að leika. Lék leikinn þeirra. Hannaður fyrir margmenni. Eins og núna. Komst klakklaust að henni. Án þess að hún yrði hans vör. Brá höndum sínum yfir leiftrandi sæbláu augu hennar. Hún kipptist örlítið til. Undan blíðlegri snertingu hans. Heyrði ráma rödd hvísla í fíngert eyra sitt. Flauelsmjúk orð í eyra. Stríðnisleg röddin hvíslaði mjúklega.Varfærnislega hljómaði: “Gettu hver?” Seiðandi. Orðin læddust jafnvarlega og hann hafði gert. Þrýstu sér. Inn í hlustina. Í hljóðgöngin. Hljóðhimnan togaði þau og seiddi áfram í flókið ferli. Milli hamars, steðja og ístaðs. Orðin. Spiluð eftir eyranu. Léttilega. Áreynslulaust. Máttur raddarinnar. Stórfenglegur.

Heili hennar vann ofurhratt. Á blindandi ljóshraða. Fullur af spenningi. Blindnin olli því að skynfæri hennar urðu næmari umhverfinu. Óhjákvæmilega. Þessum ljúfu, másandi djúpu bassaorðum fylgdi mjúklegur fjaðurmagnaður koss. Á öxlina. Þessa hægri. Kossinn. Varfærinn. Laufléttur. Beint við hálsinn. Hann þrýsti kossinum varlega niður. Fann daufan og ferskan ilm hennar fylla vitin. Blindur líkami hennar brást strax við þessari ástúð. Kossinn gaf henni nettan rafstraum. Sem þaut í gegnum líkama hennar. Í formi gríðarlegs og rafurmagnaðs skjálfta. Gæsahúðar. Gerði það ennþá. Eftir öll þessi ár saman. Hún brosti. Við hinum þekkta. Hann fann hvernig bros hennar myndaðist. Á kirsuberjarauðum vörum. Fann spéið í spékoppum. Smitaði á hann strákslegt bros. Gáskafullt. Hún þekkti þessa rámu rödd. Strax. Róandi ráma röddina. Ein af þessum röddum sem aldrei gleymist. Röddina sem hún fékk aldrei nóg af að heyra. Bárust syngjandi af munni þess sem hún elskaði. Og hafði gert í 23 ár.

Þetta var hann. Leikurinn þeirra. Glettnisleikurinn. Höfðu leikið þennan leik lengi. Síðan í gaggó. Nú, næstum komin á fertugsaldurinn. Allt er fertugum fært. Þannig stóðu leikar. Sem hæst. Hún losaði hendur hans varlega. Snéri sér brosandi við. Fitjaði glettnislega upp á nefið. Skælbrosandi. Þau brostu hlæjandi við hvort öðru. Líkt og kát lítil börn að leik. Áhyggjulaus í ástinni. Saman myndu þau leiðast áfram um lífið. Hoppa glaðlega um í parís ástarinnar. Þetta var þeirra leið til að halda í við æskuna. Þau myndu halda þessum leik áfram. Um ókomna tíð og tíma. Saman á dvalarheimilinu. Hrufótt af hrukkum við augun. Djúpar broshrukkur. Léku leikinn þeirra. Til að varðveita glettnislega ástfangna og síkáta æskuna. Glettin saman.
“Life's like a dick, it gets hard for no reason”