Órólegt kliður færðist yfir bræðurna, Svenna og Benna, sem voru nýskriðnir á þrítugsaldurinn. Ástæðu kliðursins mátti auðveldlega greina, faðir þeirra hafði nýlega fest kaup á þröngri speedo-skýlu og var að prufa hana.

,,Þetta smellpassar bara'' Sagði Jenni hróðugur og strekkti á skýlunni og lét hana svo smella á náran á sér. Orsakaði það bylgjur sem líkja mátti við brotsjó á framstæðri ýstrunni.

Svenni kúgaðist lítillega en Benni mannaði sig upp í að ávarpa föður sinn. ,,Jújú, þetta er allt voða kósý, en hvað ætlaru að gera með þetta pabbi?'' ,,Við ætlum að skella okkur í sund'' sagði Jenni snögglega meðan hann tróð gulrót ofan í sundskýluna. Svenni benti pabba sínum á að það ætti að troða kartöflu en ekki gulrót, ella liti hann út eins og perri. ,,Ég vil bara sýna fólki hvað ég er sprækur'' Sagði Jenni og leit ofan á gulrótina sem stóð eins og stoltur kirkjuturn útúr náranum á honum meðan hann vaggaði mjöðmunum. Sú iðja virtist gleðja þann gamla, því hann tók fljótlega uppá því að sveifla mjöðmunum um allt herbergið.

Gulrótin slóst léttilega í andlitið á Benna sem að ældi samstundis. ,,Já nú verðið þið að drífa ykkur í sund'' sagði sá gamli. ,,Þið eruð farnir að æla yfir óþefnum af ykkur sjálfum''

Bræðurnir reyndu að malda í móin og áttuðu sig ekki á tilgansleysi þess fyrr en bílinn rendi í hlað fyrir utan sundlaugina. ,,Viltu nú ekki klæða þið fyrst'' kallaði Benni útúm rúðuna á bílnum. ,,Til hvers?'' spurði sá gamli. ,,Við erum jú að fara í sund'' Sagði hann svo og gékk rakleiðis að sundlauginni yfir bílastæðið, klæddur engu nema Speedo skýlunni og sundgleraugum ef gulrótin er undanskilin.

Afgreiðslukerlinginn hélt varla aftur hlátrinum þegar gamli kallinn stóð við afgreiðsluborðið glottandi með hendur á mjöðmum og lét eins og hann vissi ekki af gulrótinni, meðan synir hans tveir stóðu niðurlútir eins og tvö dauðyfli fyrir aftan hann með sitthvorn Á.T.V.R. pokan í höndunum(gamli kallinn hafði bannað þeim að taka bónuspoka ,,Fólk gæti haldið að við séum betlarar'' Hafði hann sagt og laggt mikla áherslu á)

Gamli maðurinn gékk raklaust út í sundlaugina og bölvaði baðverðinum, meðan bræðurnir snéru baki hvor í annan og þrifu sig þegjandi í sturtuklefanum. Þeir reyndu laumulega að bera saman reðurstærðir með því að vera sífellt að snúa sér, og fattaði Benni að hann hefði tapað þegar hann sá lítið glott leika um varir Svenna.

Þegar sturtunni lauk fóru bræðurnir strax í einn af heitu pottunum og létu fara vel um sig. Þeir reyndu að hugsa sem minnst um gamla karlinn sem stóð þarna eins og asni á sundlaugarbakkanum og leit brosandi í kringum sig. Þeir voru í hrókasamræðum um hugsanlega alheimersveiki föður síns þegar þeir heyrðu konu eina spyrja aðra,,Hvað er þessi perri að gera þarna'' og benti í átt að Jenna.

Gamli karlinn stóð kampakátur gónandi út í loftið með gulrótina beint upp í loft fyrir ofan heitan pott fullan af ungum dömum. Bræðurnir hlupu til og sögðu gamla karlinum að nú væri nóg komið af þessum fíflalátum. ,,Þú ert að hegða þér eins og hálviti'' sagði Svenni. Benni greip um gamla kallinn og hélt honum föstum meðan Svenni teygði sig ofan í skýluna og ætlaði að fjarlægja gulrótina. Gamli kallinn brást hinn versti við, grenjaði og hrópaði á hjálp og braust um svo erfitt var fyrir Svenna að ná gulrótinni.

Í sömu andrá hlupu til tveir sundlaugarverðir. ,,Hvað eruð þið eiginlega að gera'' spurði einn þeirra. ,,Ekkert'' sagði Svenni meðan hann dró hendina hægt uppúr sundskýlu föður síns. ,,Þeim langar í gulrótina mína'' æpti sá gamli. ,,Einmitt það já'' sagði einn sundlaugarvarðanna. Gulrótin í skýlunni hafði færst til svo ekki var hún lengur eins áberandi.

Áður en sundlaugarverðirnir hlupu til höfðu þeir hringt á lögregluna sem var einmitt komin á þessari stundu. Bræðurnir voru settir inn í bíl meðan sundlaugarverðirnir reyndu að hughreysta þann gamla. Á leiðinni niður á stöð reyndi Svenni að útskýra fyrir lögreglumanninum. ,,Hann var með stærðar gulrót í skýlunni'' sagði hann. ,,Ég vil ekki heyra um það'' hvæsti lögreglumaðurinn á hann. ,,En…'' Stamaði Svenni útúr sér ,,Þeygiðu''

Já… ætlaði að hafa þetta styttra og nú dettur mér ekki í hug neinn endir. Skelli bara inn part II við tækifæri.
Addi Copperfield, Certified testacle inspector.