Úff, mikið er heitt hérna. Er langt þangað til þetta er búið, ég þekki ekki meirihlutann af þessu fólki, samt er það svo elskulegt og samúðarfullt að það er óbæranlegt. Bróðir minn er dáinn, ég vill geta hætt að sakna hans og vera ánægður yfir því aðminn ástkæri bróðir er kominn á fund Allah og að hann njóti þar mestu lífsgæða sem er utan skilnings míns. En það tekst ekki meðan þetta fólk er hérna. Stríðsöskur,stríðsyfirlísingar sem ég hef sjálfur farið með í öðrum jarðaförum. Bróðir minn er orðinn einn af þeim fjölmörgu sem hafa verið drepnir af fullbúnum ísraelískum drápsvélum vegna þess eins að reyna að berjast gegn kúgun zíonistanna sem hafa gert land okkar að helvíti að jörðu. Er þetta þolraun frá Allah, af hverju þurftu þeir að drepa bróðir minn? 13 ára gamall á leiðinni úr skólanum og fer með félögum sínum að kasta grjóti í skriðdreka ísraelsmanna, eins og við höfum gert frá því að ég man eftir mér, ég veit ekki af hverju þessi löngun er! Ég hef misst marga vini við það eitt að sína ísraelskum mönnum óvirðingu, En af hverju af hverju stígur hinn almáttugi allah ekki inn og stoppar þessa heiðingja frá því að meina okku öllu sem getur talist mannlegt. Er enginn Allah til? eru einungis hatursfullar manneskjur á jörðinni sem leysa öll sín vandamál með valdi peninga og valda?. Það getur ekki verið þetta hlítur að vera þolraun frá allah hinum eina og miskumsama guð sem hefur hjálpað mínu fólki í þúsund ár. En hvernig á ég að láta mitt af mörkum til að stöðva kúgarann í mínu landi sem er með stuðnig umheiminsin nær allan að baki?. Ekki getum við háð stríð eins og þjóðir okkar hafa gert í aldanna rás, við eigum ekki fyrir mat fyrir okkur við fáum enga vinnu við komust ekkert nema að ísraelsstöðvunum þeim sömu og afi minn dó við þegar hann fékk fyrir hjartað og var meinað aðgöngu að sjúkrahúsi. Bróðir minn er nú dáinn 13 ára gamall.
Fólkið er nú farið að tigja sig út og er enn samúðarfullt við mig en margir eru með ýmislegar yfirlýsinar hvernig þeir ætli að láta morðingjana borga fyrir þetta, samt þetta eru yfirlýsingar sem ég hef sjálfur farið með margoft í jarðaförum vina minna og ókunnugra. Allar okkar þjáningar bindast við þessa sindugu ísraela og þeirra bandalags bandaríkjanna, sú þjóð sem mun fyrst sökkva þegar allah kemur og kallar þjóð sína til sín. Ég verða að heiðra minningu bróður míns, hann hefur dáið óréttlátum dauðdaga af völdum afla hins illa. Nú sem betur fer er verið að taka bróður minn og bera hann niður að grafarreit sínum.
Bróðir minn dáinn,vinir mínir dánir,afi minn dáinn vegna hvers? Vegna þeirrar syndugu stjórnar sem fyrir tæpum 60 árum réðust hérna inn fyrir tilstuðla bandaríkjanna og Bretlands. Nú mun þetta snúast við, við palestínska þjóðinn mun ekki lengur hlusta á tilboð ísraels og bandaríkjanna um að búa í flóttamannabúðum allt okkar líf nú mun ég taka til minna ráða til að heiðra minningu bróður míns og palestínsku þjóðarinnar.

Nú eru tveir dagar síðan saklausi bróðir minn var borinn til grafar og get ég ekki hætt að hugsa um hatur mitt til kúgarans, jahmed vinur minn hefur komið mér í samband við félaga sína í öfgasveit PLO þeir hafa að minni ósk útvegað mér C4 plastsprengi-efni sem ég mun geta notað til að sprengja upp heila verslunarmiðstöð. Ég mun með þessum efnum fá heiminn til að líta hingað og sjá að kúgun palestínsku þjóðarinnar verður ekki tekið hljóðlaust. Ég er búinn að taka upp myndband þar sem ég lýsi yfir ást mynni á Allah og er hans hermaður.
Foreldrar mínir eru blessuð yfir áætlunum mínum, þau segja að ég eigi eftir að deila veldi himna allah með bróðir mínum og þar muni ég bíða eftir að þeirra dagur renni upp.


Ég skelf, nú er dagurinn sem ég á eftir að sýna að vilji Allah verður ekki kæfður niður með valdi hryllings. Ég er búinn að koma mér fyrir í skotti palestínska diplómatans achmet sem hefu fallist á að smygla mér yfir varðstöðvar ísraelsmanna. Ég ligg hér í skottinu á bílnum í steikjandi hita með svart teppi og er hitin orðinn óbærilegur ég get ekki beðið eftir að geta heiðrað bróður minn og hinn almáttuga allah.
Okkur er hleypt í gegn án mikilla erfiðleika og er það enn eitt merki um hversu rotin þessi ísralska þjóð er, afi minn með hjartaáfall fékk ekki í gegn en diplomati PLO fær strax inn. Diplomatinn lætur mig út hjá húsi þar sem vinfelldir menn eiga heima. Ég banka að dyrum og er tekið með miklum hátiðar höldum og er boðið hinar girntlegustu kræsingar, ég neita góðfúslega og segist ekkert vera að gera neitt merkilegt annað en að heiðra bróðir minn og allah og munu mín verðlaun verða borguð á himnum. Nú er tíminn liðinn og mun ég nú með þökkum þiggja far niður á verslunargötuna, þeir jánka og eru auðmjúkir. Mér er keyrt núna og er ekki annað talað um á leiðnni en sú veisla sem mín bíður á himnum.
Loks erum við kominn ég er orðinn leiður á því að heyra talað um hvað mín bíði á himnum, hvað vita þeir hvað bíði mín?. Nú er mér hleypt út og ég geng út og þeir keyra burt strax. Ég labba niður götunna og ætla að undirbúa mig undir að fórna mér, en ólíkt því sem ég hélt þá finn ég ekki fyrir neinum kvíða ég er upplístur stríðsmaður allah og nú láta kúgarann finna fyrir vott af réttlæti, það er einkennileg ró yfir mér og loks sé ég verslunina sem ég ætla að nota til að koma fram réttlæti. Ég geng að henni og er niðurlútur því að öryggisverðirnir í versluninni stöðva alla múslima og leita á þeim, ég geng inn og lít upp ég er með hendina á takkanum sem er tengdur við sprengjuna sem er í bakpokanum mínum, nú er skal ég gerast píslavottur og njóta himna allah með bróður mínum.LIFI ALLAH!!!



Úff, mikið er heitt hérna. Hvað er að ske? Hvar er ég? Virkaði ekki sprengjan? En þessi hiti mér líður eins og húðinn sé að bráðna af mér þvílíkur sársauki, ég sé ekki neitt en það er eins og eitthvað teymi mig áfram, ég veit ekki af hverju ég geng og veit ekki hvert en ég ræð ekki við þetta. Hvar er ég er ég að fara á fund allah? En af hverju er þessi sársauki? Og af hverju liggja dánir eða særðir einstaklingar á víð og dreif?.
En allt í einu stoppa ég og það er eins og þokuni létti aðeins og sé ég stóra byggingu en það er allt í einu reykskýi því að þar er eins og eldur hafi tekið við stöðu loftsins. En reykurinn sjatnar aðeins og ég sé skilti: THE ZIONIST PARTY.