Bjölluhófið BJÖLLUHÓFIÐ

Það vita það nú ekki allir, en á 100 ára fresti, og einungis á
100 ára fresti, þá eru haldnar veglegar veislur. En þetta eru
engar venjulegar veislur. Í þessum veislum, sem við skulum
kalla Bjölluhóf, safnast allar bjöllur veraldar saman og fagna
því að vera til. Og ég er ekki að tala um neinar kirkjubjöllur,
eða dyrabjöllur, eða jafnvel brunabjöllur. Ég meina allar
heimsins lífsglöðu bjöllur, allt frá veggjatítlum til jötunuxa, frá
járnsmiðum til kakkalakka, frá maríubjöllum til risabjalla. Því
allt eru þetta bjöllur, og allar hafa þær jafn ofboðslega gaman
af að Bjölluhófinu. Þær hafa hlakkað til þess allt frá því þær
fæddust, og iða í ytri stoðgrindunum að fá að búa sig upp, og
fara í Bjölluhófið.

En, það er þó bara á 100 ára fresti, samt sem áður, og því
komast ekki allar bjöllur í Bjölluhóf. En þær sem það gera, eru
heppnar bjöllur. Fyrst sleikja þær sig allar í kring, og það
meira að segja þrisvar, því það gerist ekki nema á 100 ára
fresti að þær komist í Bjölluhóf. Og einmitt þess vegna
keppast þær líka um að næla í ilmríkasta blómasafann til að
bera á sig, og fallegasta stráið til að bera á milli vængjanna,
og þær keppast líka um að bjóða fallegustu kvenbjöllunni í
Bjölluhófið. Því það er engin bjalla með bjöllum, nema hafa
bjölludrottningu sér við hlið, og ég tala nú ekki um í Bjölluhófi,
en þau verða einungis á 100 ára fresti, svo það er eins gott að
velja vel.

Og það var einmitt þetta töfraár í fyrra, og ein af hinum heppnu
bjöllum var einmitt Knútur kaktusbjalla, og það var einmitt farið
að styttast í Bjölluhófið. Knútur hafði sleikt sig allan í kring,
ekki einu sinni, ekki tvisvar, ekki einu sinni þrisvar, heldur
fimm sinnum! Hann var alveg ákveðinn í því að gera þetta
Bjölluhóf minnisstætt, enda ekki skrítið, þar sem hann myndi
aldrei á ævinni upplifa annað. Hugsið ykkur ef þið mættuð
bara gera eitthvað einu sinni á ævinni! Þá hlýtur maður að vilja
gera það vel. Og einmitt þess vegna bjó Knútur sig undir að
sleikja sig allan í kring í sjötta skiptið. Og hann var líka búinn
að safna sér dýrindis blómasafa úr langfallegustu liljum
vallarins, og allar hinar bjöllurnar öfunduðu hann. Og hann var
líka búinn að klippa sér fallegasta brönugrasið á öllu túninu til
að hafa milli vængjanna, og allar hinar bjöllurnar öfunduðu
hann. Og Knútur var stoltari en hann hafði nokkru sinni fyrr
verið. Enda var hann á leið í Bjölluhóf, og það gerist ekki
nema á 100 ára fresti. En einu hafði hann alveg gleymt, og
það var að finna sér dýrindis bjöllustelpu til að bjóða með í
Bjölluhófið. Og dýrindis bjöllustelpu varð hann að fá, því hann
hafði þegar sleikt sig allan í kring sex sinnum, og hann hafði
þegar fengið dýrindis blómasafa, og hann hafði þegar fengið
dýrindis brönugras. Og sjáðu til, Bjölluhóf verða einungis á
100 ára fresti!

Hvernig gat Knútur hafa gleymt að bjóða bjöllustelpu? Nú voru
góð ráð dýr, enda farið að styttast í Bjölluhófið stórfenglega,
og allar dýrindis bjöllustelpurnar voru þegar fráteknar.

Knútur fór um allt túnið, en alls staðar voru bjöllustelpurnar
komnar með bjölluherra og voru að búa sig undir Bjölluhófið
af mesta móð, enda var það einungis á 100 ára fresti. Og
hann fór um alla sveitina, en alls staðar voru sömu svör. Nú
voru góð ráð sko ekki á gjafvirði. Knútur var orðinn úrkula
vonar, og mikið var hann sorgmæddur. Í Bjölluhófið gæti hann
ekki farið bjöllustelpulaus, þrátt fyrir hvað hann var hreinn,
þrátt fyrir yndislega blómasafann, og jafnvel þrátt fyrir dýrindis
brönugrasið. En einmitt þar sem hann lá og vorkenndi sér, því
nú kæmist hann ekki í Bjölluhófið, og það er einungis á 100
ára fresti, einmitt þar sem hann lá, velti því fyrir sér og
vorkenndi sjálfum sér, kom að yndisfríð bjöllustelpa. Sú
fallegasta sem hann hafði augum litið, og hafði hann þó farið
um alla sveit að bjóða fríðum bjöllustelpum með sér í hófið.
Hann spurði hana að nafni, og kvaðst bjöllustelpan heita
Karen. En þegar hann spurði hvort hún vildi fara með honum í
hófið, þá var honum illilega brugðið. Hún hafði ákveðið að fara
með Klepra kaffibjöllu! Og Klepri hafði bara sleikt sig einu
sinni, og hann átti bara venjulegan fíflasafa, og átti ekki einu
sinni brönugras, heldur bara venjulegt strá. Og hann hafði
bara setið og samið fáránleg ástarljóð og skemmt sér
konunglega, meðan allar hinar bjöllurnar unnu hörðum
höndum við Bjölluhófsundirbúning. Þetta fannst Knúti
ósanngjarnt, og hann sat heima við að ala sorg sína meðan
Karen og Klepri, og allar hinar bjöllurnar skemmtu sér sem
aldrei fyrr, og sem aldrei aftur, í stórfenglegasta Bjölluhófi í
bjölluminnum, og þau eru einungis haldin á 100 ára fresti.