hér er annar hluti
Eftir ,,slysið” leit Larz alltaf hornauga á Júlíus. Viku seinna fór Tinni í ferð með kirkjukórnum sínum þar sem hann er búinn að vera síðan hann ,,uppgötvaði” sjálfan sig, þannig að Larz þurfti að passa Júlíus (huummmm) og daginn eftir ,,gleymdi” Larz Júlíusi í ballettíma í tvo daga (og svo óheppilega vildi til að þessa 6 daga reið yfir mesti snjóbylur íslands frá upphafi skráningar) og Júlíus beið fyrir utan í ballerínubúningnum sínum, Júlíus var í dái í 9 vikur.
Skólinn var byrjaður og Júlíus hlakkaði til að eignast vini (þar sem hann skringilega hafði ekki eignast ,,marga” vini). Hann Júlíus fékk nýja skólatösku og reiðhjól, en fyrsti dagurinn byrjaði ekki vel því kennarinn ,,rakst” með hnefann í augað á Júlíusi það fast að augað sprakk og það fossblæddi úr því en enginn ,,tók” eftir því fyrr en hann kom heim. Viku seinna sneri Júlíus aftur í skólann með eitt auga.
Júlíus bjóst við afsökunarbeiðni frá Hrannari kennara sínum en engin afsökunarbeiðni kom, Júlíus lét það ekki á sig fá og reyndi að gera sem best úr því. Júlíus varð nokkuð hissa á því að Hrannar sagði að bara hann þyrfti að borga skólabækurnar, Larz og Tinni ætluðu að fara í mál en uppgötvuðu að þá myndu þeir þurfa að borga meira í lögfræðikostnað heldur en að borga skólanum og Júlíus yrði rekinn úr skólanum, þannig að þeir borguðu umrædda summu, 60 þúsund.
Næsta dag þegar skólanum var lokið tók Júlíus eftir því að hjólinu hans var stolið og hann hafði meira að segja merkt það með rauðri línu aftan á hnakknum. Á leiðinni heim var Júlíus snöktandi og var að hugsa hvernig hann átti að segja “foreldrum” sínum að hjólinu hans hafi verið stolið, í þeirri augnbrá kom fullorðinn maður á barnahjóli framhjá og stakk öðrum fótinum út og sparkaði harkalega í Júlíus það fast að beinið í handleggnum á Júlíusi hreinlega sprakk. Júlíus leit upp úr gangstéttinni með blóðugt andlit og sá mann sem leit á Júlíus með þeim mesta fyrirlitningarsvip sem hann hafði nokkurn tíma séð (meiri heldur en fólkið á götunni leit á “foreldra” sína), og sá þá að maðurinn á barnahjólinu var hættulega líkur Hrannari kennara sínum, og það var líka rautt strik aftan á hnakknum, en lengra komst Júlíus ekki með pælingar sínar því það leið yfir hann. Og þar var Júlíus á mestförnu götu Reykjavíkur í 5 daga þangað til honum var kastað inn í húsasund og þar var hann í viku til viðbótar.
