Gyðjurnar voru loks ánægðar, en ákváðu samt enn að prófa sig áfram. Nú ætluðu þær að sýna sig. Til að fá heiður að þessu öllu, en ætluðu að taka þessu hægt. Þær birtust einum og einum sem dýr, og eftir nokkur ár voru mennirnir byrjaðir að trúa á þær, svo þær tóku þá ákvörðun að birtast þeim í sinni réttu mynd. Þær sáu fagurt tún með fallegum blómum, rétt hjá ný reistum kastala. Þær vissu að þeir kölluðu ríkið Nagropis og að konungurinn þar trúði sterkt á þær. Svo einn dag birtust þær á þessu túni þegar konungurinn var á ferð með hirðinni og báru þeim þau boð að búa til handa þeim hof. Það var einmitt þar sem Elb Grango var reist, hofið þar sem gyðjurnar búa núna, í sal skreyttur með gulli og verndaður af öflugustu gárum. En myrkrið beið átekta.

Myrkrið hafði ekki gleymt. Svik gyðjanna yrði hefnd. Synir myrkursins voru búnir að fjölga sér um talsvert en, þótt fjöldin væri mikill, voru gárar gyðjanna of öflugir. En þeir höfðu tromp í erminni. Þeir höfðu fengið tákn um það að mikill hermaður yrði valinn til að verða “blessaður” með styrk myrkursins. Það var þá sem Þófnir kom á yfirborðið. Þófnir þýddi á fornri tungu “dökkur” eða “dimmur” en það var óþekkt á þeirri stundu hver yrði fyrsti þófnir. Svo kom að þeirri stundu að fyrsti þófnir fæddist. Barnið var nefnt Geysill, og var sonur konungsins af Nagropis. Synir myrkursins tókst að koma liðsmanni þeirra í þá stöðu að vera fóstra prinsins og þjálfa drenginn og tókst honum að drepa foreldra hans.

Með árunum varð Geysill sífellt óvinsælli og eignaðist marga óvini. En með hjálp Syni myrkursins tókst honum alltaf að halda velli. Þar til dag einn. Her gyðjanna ákvað að taka kastala hans og með einni árás tókst þeim að sigra. En á meðan bardaganum stóð fékk Geysill tilboð um að verða ósigrandi gegn því að hann fórnaði sér og hermönnum sínum, auðvitað tók hann því. Það var ekki fyrr en eftir á að Synirnir vissu að Geysill væri ekki fyrsti þófnir. Þeir fréttu að drengur, fimm vetra gamall, hefði fundist að nóttu til og hefði verið settur á munaðarleysingjahæli. Honum hafði verið gefið nafnið Þófnir vegna þess hve dökkur á skinn hann var. Nú yrði hefndin loksins framkvæmd….
"Eastman! He came from the east to do battle with the amazing