Hann reið lengra út í eyðimörkina, vatnslaus og matarlaus. Hann fann fyrir þorstanum í hverjum andardrætti. Hann hugsaði um síðustu viku og hvernig að hann hafði sloppið frá El Halcon eða ”Hauknum”. Þegar að hann reið lengra á brokki, fann hann vonina dvína og honum fannst allt lífið renna framhjá sér en í rauninni var það aðeins síðasta vika……..

- - - -

Hin gullfallega Linda Brocc steig á sviðið á barnum í bænum Mander í Nýju Mexíkó. Hún byrjaði dansinn og dansaði með ákefð, þá tók hún eftir manni sem var að ganga inn hún kláraði dansinn og neitaði nokkrum karlmönnum um rúmmliggju því hún vildi kynnast þessum manni því að var eitthvað við þennan mann sem hún skildi ekki.
Hann hafði séð hvernig hún hafði starað á sig, hann gekk að barnum og bað um Wiský.Hann drakk það í einum teyg og gekk í átt að spilaborði þar sem spilað var 21. Hann spurði þurrlega hvort hann mætti vera með og var honum leyft það. Heppnin var með honum enda var hann með betri spilurum í vestrinu. Eftir 500 dollara gróða gekk hann út að einu borðinu settist niður og vafði sér sígarettu. Hann sat og reykti er hún kom.
Það fyrsta sem að hún tók eftir voru stálgrá augu hans, augu byssumannsins. Hún skildi að það gat ekkert verið á milli þeirra annað en einnar nætur gaman. Hún steig í vænginn við hann og henni sýndidt honum líka það.
Hún vaknaði við sólina er skein svo fagurlega inn um gluggan á hótelherberginu, þessari nótt myndi hún aldrei gleima.Hún vissi núna hver þetta var, hann MORGAN BANE. Svarthærður grannvaxinn maður mjög stæltur, vegna smæðs hanns misreiknuðu margir kraft hans og kom það mörgum manninum í gröfina. Um hana streymdi unaðsstraumur er hún leit á hann
Hann var útklóraður eftir nóttina og sveið í sárin þegar að hann baðaði sig í balanum sem var komið með upp. Hann bölvaði sjálfum sér fyrir að láta ginna sig í burtu frá starfi sínu, enginn tími mátti fara til spillis. Hann var varðliði, sem var nokkurnskonar úrvalsvíkinghalögreglusveit nútímanns. Hann var að elta uppi smyglara sem að smygluðu dansmeyjum til Texas, höfuðpaurinn El Halcon eða “Haukurinn” var skotmark hans en aðeins eftir að hann hafði fengið nægjar upplýsingar frá honum. Smyglið byrjaði árið 1889 og það hafðin staðið í tvö ár og allan þann tíma hafði verið leitað að þessum hauki og loks núna var hann fundinn og þá var besti maðurinn sendur MORGAN BANE ………………..