Pípið ;D Verkefni sem ég gerði í íslensku, smá saga, samdi hana sjálf, ….

Ég sit í skólastofunni enginn er kominn. Ég geng fram en ég sé engan skrítið skólinn á að byrja eftir tvær mínútur. Hvað er í gangi? Ég heyri þrusk og sé skugga af veru, veru sem líkist kanínu, samt meira slefandi úlfi. Ég fer nær og sé veruna betur, þá er þetta bara hallfríður vinkona mín. Ég fer til hennar. ,, hvað er í gangi?“ Spyr ég Hallfríði. ,,Ég borðaði banana í morgun mat,” Svaraði hún. ,, Gott hjá þér en hvar eru allir hinir?“ Spurði ég, hún horfði á mig furðulostin og það er eins og hún hafi ekki skilið mig. Þá sagði hún alveg upp úr þurru ,,Du er en Fød kø.” Ég horfði á hana eins og hún væri Þroskaheft. ,,AAAAHHHHH." Ég heyri öskur, ég lýt fyrir aftan mig og sé blóð leka í áttina að mér. Ég lít aftur á Hallfríði, en hún er ekki þar. Þá lít ég aftur þar sem blóðið er að leka og geng í áttina þar sem blóðið átti sér uppruna. Ég er búin að ganga í fimm mínútur þá loksins sé ég stelpu liggja á gólfinu og blóðið flæddi úr henni. Ég gáði betur, nei það gat ekki verið þetta var Hallfríður! Ég öskraði og hljóp í burtu. Á hlaupum mínum dett ég og ég dett í bleytu, það er dimmt og ég sé ekki hvernig bleyta þetta er ég þreifi á vösum mínum og finn þar kveikjara. Ég kveiki á honum og þá sé ég að ég ligg í blóði, og sé líka fullt af dauðum krökkum fyrir framan mig og svo sá ég að einn þarna hreyfði sig og sagði : ,, Forðaðu þér farðu, hann kemur fyrir aftan þig hlauptu!!” Nú var hann dáinn. Ég klifraði yfir þessa líkhrúgu og hljóp þegar allt i einu allt í einu skólastjórinn stendur fyrir framan mig og tekur mig, hann sprautar mig með einhverju og næst vakna ég læst niðri í stól og það heyrist hljóð í sög, ég lýt upp þá er skólastjórinn að saga í höfuðið á mér ég byrja að öskra. Pípp, pípp!! Hvað var þetta? Vekjaraklukka? Þetta var þá bara draumur!

Segja mér svo hvernhig ykkur fannst ;D
=)