Hún er byrjuð aftur! Ég er búin að fá nóg… alveg frá því að ég var 10 ára og núna er ég fimmtán ára gamall. Hún hættir ekki!

Ég veit ekki hversu oft hún hefur farið í meðferð. Hversu oft ég hef ekki séð hana um jólin vegna þessa.

Núna er það sterkara en áður. Hún byrjaði bara að reykja. Þau trompuðust auðvitað. Hún hafði alltaf verið svo góð við mig. Oft farið með mig í bíó eða gert eitthvað annað skemmtilegt með mér eða fyrir mig. Svo fór hún seinna meir í að drekka og í slæman félagsskap. Var aldrei heima. Svaf hjá fullt af strákum, þurfti meira segja einu sinni að fara í fóstureyðingu. Það var nú meira áfallið.

Núna er hún 21 árs. Alveg frá því hún var 12 ára hefur hún verið í Rugli. Fór nokkrum sinnum útí Kókaín neyslu. Veit ekki hversu oft hún hefur farið í meðferð. Ætli það sé ekki komið uppí svona 20-30 sinnum. öll þess skipti hef ég grátið, grátið svo sárt. Hvers vegna gerir hún þetta?

henni hefur alltaf tekist að vinna inn traust mitt aftur og svo brýtur hún það jafnóðum. Ég græt…

Núna fyrir stuttu lenti hún í hræðilegu slysi rétt við Straunsvík. Bíllin fór í 5-8 veltur og lenti svo ofan í vötnunum rétt fyrir framan álverið. Hún var ekki einu sinni í belti. Samt skreið hún útúr bílnum með bara eitt lítið sár. En samt var hún með stærra sár en það löngu fyrir slysið. Heilinn hennar var og er alveg steiktur. Crystal Meth heitir það víst. Eitt af því sterkasta sem þú getur notað. Þau auðvitað fóru í sjokk og sömuleiðis ég. Fekk algert áfall. Þau grétu. Þetta er í fyrsta sem ég hef séð hann gráta (fyrir utan í jarðaför pabba hans en það var öðruvísi).

Hún fór í meðferð. Ég var reiður. Hún var búin að vera edrú í meira en hálft ár. Hún braut traust mitt, aftur…
Hún fór í meðferð. ég var 2 mánuði að jafna mig og mamma var alltaf að reyna að fá mig til að fyrirgefa henni. Ég talaði ekki einu sinni við hana, leit ekki á hana. Loksins fyrirgaf ég henni það á endanum.

2 vikum seinna kem ég að þeim og hún grætur og grætur. Þá kemst ég að því að hún er byrjuð aftur. Núna er ég búin að fá nóg! Ég er ekki sár lengur heldur reiður. Í þetta sinn er ekki hægt að fyrirgefa henni. Nú er þetta gengið of langt, henni verður ekki bjargað. Ég get ekki fyrirgefið henni þetta og ég mun aldrei tala við hana aftur.
Gwenny þú ert ekki systir mín!!
So does your face!