Ég trúði því varla að þetta væri að gerast. Hún hafði sagt þetta áður en ég hélt ekki að hún myndi nokkutíma láta verða af því.

Ég hafði ekki þekkta hana nema í svona 2 ár og hún hafði alltaf verið frekar sérstök. Talaði sjaldan enda mjög feimin, faðir hennar hafði misnotað hana í æsku sem varð til þess að hún varð hrædd við stráka þegar hún varð eldri. Útaf því hversu hlédræg hún var, hafði henni oft verið strítt í skólanum. Ég var sú eina sem kom heni til varnar, ég var sú eina sem vildi kynnast henni og var sú eina sem hún vildi kynnast. Hún átti tæknilega séð engann að, hún strauk að heiman þegar hún var 15 ára og foreldrar hennar reyndu ekki einu sinni að finna hana, þeim var alveg sama. Hún bjó samt hjá ömmu sinni þegar ég kynnstist henni en ári seinna dó amman svo að það var ákveðið að hún skyldi flytja heim til min. Foreldrar minir tóku henni vel, fæddu hana og klæddu og komu fram við hana eins og hún væri þeirra eigin dóttir. Eftir að hún flutti heim til mín fór ég að sjá breytingu á henni, hún brosti meira og sjálfstraustirð jókst.
Krakkarnir í skólanum voru farnir að láta hana í friði því að hún hékk með mér og var hætt að vera alltaf ein og var hætt að láta vaða yfir sig.
Hún var loksins ánægð og allt virtist ætla að ganga vel, alveg þangað til að hún kynnstist honum. Hann var einn af þeim sem gat allt, vissi allt og kunni allt, sá vinsælasti í skólanum.
Ég gat alveg skilið af hverju hann valdi hana, hún var líka alltaf svo rosalega falleg, svo falleg!!
Í fyrstu virtist allt ætla að fara vel, hann kom vel fram við hana, gaf henni blóm og bauð henni í bíó eða út að borða. Þau voru hið fullkomna par.
Svo eftir að þau höfðu verið saman í nokkra mánuði breyttist allt. Hann fór að hringja sjaldnar og í þau skipti sem hann hringdi var það bara til að fá eitthvað lánað eða til að fá að sofa hjá henni.
Og það sem ég skildi ekki var það að hún lét allt eftir honum, lét sig bara hafa það og gerði allt sem hann sagði heni að gera. Eitt kvöldið kynnti hann henni fyrir vinum sínum, sem allir voru álíka slæmir og hann. Þetta kvöld fór allt úr böndunum, þetta kvöld eyðilagðist allt, þetta kvöld kynnti hann hana einnig fyrir dópi. Ég sá það á henni þegar hún kom heim, það var eins og hún væri í allt öðrum heimi. hún vildi ekki tala um það, hún vildi bara ekki segja mér neitt, sem var skrítið því að við höfðum alltaf getað sagt hvor annari allt. Hún fór að hitta hann og vini hans á hverjum degi eftir þetta. Hún var alltaf úti alla nóttina og þegar hún loksins kom heim var hún algerlega út úr heiminum og engin leið að ná sambandi við hana.
Svona hélt þetta áfram dag eftir dag, viku eftir viku og mánuð eftir mánuð, þangað til að dag einn opnast dyrnar á herberginu mínu, hún gengur inn, sest á rúmið mitt og byrjar að hágráta.
Ég vissi strax að það var útaf honum, svo ég tók þétt utan um hana og lyfði henni að gráta.
Þennan dag sagði hún mér allt. Hún sagði mér hvernig hann og vinir hans hefðu fengið hana til að prufa með þeim dóp. Hvernig þeir hefðu nýtt sér það að á meðan hún var í vímu hefðu þeir klætt hana úr og skipst á að ríða henni. Svona hafði þetta svo verið í hvert skipti sem hún fór að hitta þá, þau fengu sér dóp og þeir skiptust á að nauðga henni, aftur og aftur og aftur.
Svona hafði þetta svo gengið í um 3-4 mánuði.
Loksins þennan dag hafði hún fengið meira en nóg, loksins í dag hafði hún bara sagt NEI!!! Hann varð alveg snarbrjálaður og hótaði henni öllu illu, hún ákvað því að enda þetta í eitt skiti fyrir öll, svo að hún sagði honum upp og skellti svo á.
Stuttu seinna kom hún ot talaði við mig. Ég var svo stolt af henni. Síðan virtist allt vera á uppleið aftur, hún fór í meðferð í mánuð og kom heim alveg glæný manneskja. Eða það hélt ég alla vega. Hún átti það til að sökkva niður og gráta dögum saman og tala um hvað það yrði bara betra að deyja og losna þannig við þetta allt. En ég var samt alveg viss um að hún kæmist í gegnum þetta allt. Henni fór að ganga betur í flestu, gekk vel í skólanum, grét sjaldnar og brosti meira.
Allt virtist vera að virka, allt var gott…..
Alveg þangað til að dag einn birtist hann á dyraþrepunum heima hjá mér alveg bandbrjálaður.
Hann dró hana með sér út, ýtti henni inní bíl og keyrði í burtu. Hann keyrði með hana heim til sín þar sem vinir hans biðu eftir honum. Hann hrinti henni út úr bílnum og dró hana alla leið upp stigann og inní herbergi. Þar sótti hann stól, lét hana setjast niður og batt hana við stólinn. Hann stóð yfir henni í nokkrar mínútur og bölvaði henni í sand og ösku, síðan byrjaði hann að berja hana.
Fyrst bara einu sinni og laust en svo oftar of fastar, alltaf fastar og fastar og fastar.
alveg þangað til hann varð þreyttur í höndunum og þá bara bauð hann vinum sínum að vera með og þeir fóru bara að leika sér að því að berja hana.
Þegar þeir höfðu hamast á henni eins og boxpúða í einhverntíma og hún hafði fyrir löngu misst meðvitund ákváðu þeir að nú væri kominn tími til að leysa hana. Svo að þeir leystu hana og lögðu hana á gólfið. Allir voru þeir uppdópaðir.
Þeir ákváðu svo að klæða hana úr og leika sér að henni í seinasta skipti. Svo að þeir skiptust á að troða sér inní hana og taka hana. Þegar þeir höfðu fengið nóg klæddu þeir hana aftur í og hentu henni út á götuna. Þar lá hún í að minnsta kosti 2 klukkutíma eða þangað til að hún rankaði við sér og náði áttum. Það fyrsta sem hún hugsaði var að reyna að koma sér heim. Nema bara að hún kom aldrei heim. Ég heyrði ekkert í henni í heila 2 daga og það sem ég vissi ekki var að ég átti aldrei eftir að heyra frá henni aftur.
Lík hennar fannst 3 dögum seinna!! Í jakkanum hennar fannst bréf sem var stílað á mig, Ég á ennþá erfitt með að lesa það án þess að tárast.
Í bréfinu stóð að hún gæti þetta ekki lengur og að henni þætti vænt um mig, að hún elskaði mig sem systur og að hún vonaði að ég gæti fyrirgefið henni. Í hinum vasanum á jakkanum hennar fannst svo byssa. Lögreglan sagði mér seinna að hún hefði notað byssuna til að skjóta hann og vini hans og hefði síðan skotið sig!!!!!

“Ég trúði því varla að þetta væri að gerast. Hún hafði sagt þetta nokkrum sinnum en ég hélt ekki að hún myndi nokkurtíma láta verða að því”
Hell Yeah :D