Einn ég sit og sauma… Inní litlu húsi… Enginn kemur að sjá mig… Nema litla músin…

AH! MÚS! ÉG HATA MÝS!

*pow-pow*

HAH! TAKE THAT YOU EVIL LITTLE CREATURE! Ég læt sko enga mús stöðva mig þegar ég er að sauma, ónei!

Þessvegna er ég núna að halda áfram að sauma. Sko. Já. Ég sit hérna með nál í hönd og … ÁTS!

ÉG STAKK MIG!

Það blæðir svolítið úr hendi minni. Það þýðir að ég mun eignast dóttur með blóðrauðar varir.

Best að ná í plástur…

Úh! Hann er svartur! Það þýðir að dóttir mín mun verða með kolsvart hár.

Hmh, byrjað að snjóa svona snemma. Huh. Það þýðir að hún verður hvít sem snjórinn. Nújæja.

Jæja, þá er ég búinn að sauma systur mínar saman. Best að fara að koma sér þá.



*átta árum síðar*



Úh, ég á dóttur!

Noh, kolsvart hár, blóðrauðar varir og náföl. Vitiði hvað er þá sniðugt að kalla hana?

MJALLHVÍT!

Ha? DÓ KONAN MÍN?

NOOOOOOOOOOOOOOOOO!!

Hrmpf. Ætli það verði ekki að hafa það. Best að fara þá og giftast einhverri norn.



*sextán árum síðar*



Hah. Hvað? Stalst stúlkan mín útí skóg og var stungin til bana af hirti? Eða einhverju? Iss. Það er slæmt.

Einsgott að ég á enn gullfallega norn fyrir konu.

Ha? Fór hún inní einhvern skóg, var drepin af 7 kynóðum dvergum og er dóttir mín komin aftur?

En hver á þá að fullnægja mér?!

Hrmpf. Fæ mér bara þernu.

Og já, gott að dóttir mín er komin aftur. Gefið henni prins eða eitthvað.






Ég veit ekkert hvort þetta verður samþykkt eða ekki, skrifaði þetta í einhverju bullástandi og ákvað að prófa að senda þetta inn. Njótið.