Glæpir í stórmarkaði

Lalli var mjög vinalegur og góður lögregluþjónn en það þurfti ekki mikið til að gera hann reiðan. Lalli ,sem hét raunverulega Lárus, átti að vakta stórmarkað því það hafði verið kvartað undan unglingum sem væru að hnupla úr búðunum. Lalli mætti um morguninn og þá voru flestar búðirnar byrjaðar að opna. Hann gekk bara þarna um og beið þangað til fleiri viðskiptavinir kæmu í búðirnar. Þetta var á laugardegi þannig að markaðurinn var að fyllast af fólki eftir hádegi. Allt í einu var kallað á hann í talstöðinni og sagt að tveir ellefu ára drengir væru að stela gríngleraugum. Lalli flýtti sér á staðinn og náði einum sem sagðist heita Kalli og sagði: „Þú munt aldrei ná Alla því þú ert svo feitur og Alli hleypur svo hratt.“ Þá varð Lalli bandbrjálaður og lét einn af starfsmönnum stórmarkaðarins halda stráknum. Því næst hljóp hann í þá átt sem hinn strákurinn hafði hlaupið og var ekki lengi að hafa uppi á honum. Nú var Lalli ánægður með sjálfan sig því hann hafði staðið Kalla og Alla að verki við hnupl og náð þeim báðum.