Mizzeeh stolið - Partur I & II Mizzeeh stolið – Part I – Tilkynningin

Fyrsta kalda daginn í nóvember og alls ekki þann síðasta kom í fréttum Ríkissjónvarpsins(RÚV), Stöðvar 2 og TSNG að Mizzeeh(öðrum forseta vor) hefði verið stolið af geimverum sem ferðuðust um á fljúgandi furðuhlutum(FFH).

Það fyrsta sem Devotion gerði eftir að hann frétti þetta var að gefa út tilkynningu um hvað myndi þurfa að gera til að ná Mizzeeh aftur.
Tilkynningin var svona:
“Kæru Sorparar.
Eins og þið hafið kannski frétt þá var Mizzeeh stolið af geimverum.
Þetta er mikil sorgarstund en þetta er ekki tími til að “panika” því að það er það sem geimverurnar vilja, því ef við “panikum” þá er léttara fyrir geimverurnar að stela okkur einum og einum í einu alveg þangað til að enginn Sorpari verði eftir á Huga.
Vér sem eftir erum(öll nema Mizzeeh) ættum því að stofna herdeild.
Þessi herdeild verður fyrir sjálfboðaliða og við tökum alla inn, jafnvel þá sem eru ekki Sorparar.
Enn er ekki búið að skipa hershöfðingja en það verður gert fljótlega.
Til að skrá sig í herdeildina þá getið þið farið að skrifborðinu við útganginn þar sem tiger13 situr og tala við hann þá lætur hann ykkur fá eyðublað sem þið síðan fyllið út og skilið honum.
Eruð þið með einhverjar spurningar?”

*Allir tala í einu*

“Einn og einn í einu!” sagði Devotion og lagði mikla áherslu á orð sín.
Supermann:”Ef við meiðumst eftir að við göngum í herdeildina, til dæmis í stríði við geimverurnar, borgar þá herdeildin, Sorpið eða þurfum við sjálf að borga fyrir lækniskostnað?”
Nesi13:”Supermann þú ert ekkert að fara að meiðast, þú ert nú einu sinni ofurhetjan á Sorpinu.
Devotion:”Sorpið myndi borga allan lækniskostnað.”
Lily2:”Mega kvenmenn líka ganga í herdeildina?”
Devotion:”Auðvitað, það myndi þýða stærri herdeild og meiri líkur á því að við myndum ná Mizzeeh til baka heilum á húfi.
Vansi:”Eru ekki miklar líkur á að við náum Mizzeeh til baka heilum á húfi?”
Devotion:”Samkvæmt okkar aðalstærðfræðingi, tiger13, þá eru 68% líkur á að við náum honum heilum á húfi til baka og prósentan fer hækkandi með hverri manneskju sem gengur í herdeildina, en því lengur sem við erum að skipuleggja okkur þá lækkar prósentan.
Ég þarf að fara á fund með JReykdal og öðrum forsetum um þetta mál svo ég verð að slíta þessum fundi.”

*Devotion gengur út og stígur upp í limósínuna sína sem keyrir hann á flugvöll Sorpsins*

Mizzeeh stolið - Fundur við JReykdal - Partur II


Devotion flýtti sér eins og hann gat út úr limósínunni og upp í vél þegar hann var kominn á flugvöllinn.

Sem betur fer var allt tilbúið á flugvellinum svo það eina sem Devotion þurfti að gera var að hlaupa upp í vél.

Þegar Devotion var kominn upp í vél og búinn að spenna sig þá var farið á loft.
Enginn smá vél, þetta var eina concorde flugvélin sem var ekki jarðsett það var nefnilega búið að fá sérstakt leyfi um að Mizzeeh og Devotion mættu nota hana en þá væri það á þeirra ábyrgð ef þeir myndu hrapa.

Eina manneskjan sem Devotion, og reyndar Mizzeeh líka, treysti til að fljúga vélinni var fullkomnasta manneskjan sem þeir vissu um, HerraFullkominn.

Flugið gekk eins og í sögu[reyndar þá er þetta saga] og á nánast engum tíma þá var Devotion kominn til Forsíðu.

Þegar Devotion gekk út af flugvellinum þá sá hann mann með skilti sem stóð á “Mr. Devotion”.

Devotion gekk beint til hans og sá að maðurinn með skiltið væri MadClaw.

Þeir heilsuðust, en það var enginn tími fyrir endalaust spjall þar sem fundurinn byrjaði eftir smá stund.

MadClaw var víst ökumaðurinn hans og ók honum til fundarhússins.

Devotion gekk inn í fundarsalinn og þá sá hann JReykdal og aðra forseta.

JReykdal bauð Devotion að setjast.

Þá hófst fundurinn.

JReykdal sagði:“Fundur er settur og vér ætlum nú að ræða um þann sorgarlega atburð sem varð fyrr í dag, en það er að öðrum forseta Sorpsins var rænt af geimverum eins og þið sjáið þá er Devotion hér með okkur nú svo það var Mizzeeh sem var rænt.”

Devotion:“Við á Sorpinu erum búin að stofna herdeild sem hefur það verkefni að ná Mizzeeh aftur heilum á húfi.”

Xavier[skráður sem forseti á Lífstíl og Deiglunni]:“Ég get sent leitarflokk á stað þar sem ég hef ekkert að gera við skátana sem ég er með.
Síðan get ég látið kokkana mína búa til mat fyrir herdeildina og ég gæti jafnvel fengið eitthvað frægt fólk til að styðja okkur.
Síðan get ég séð um peningamál og sett háttvirta stjórnarmenn inn í málið.”

Dagfari, roadrunner og sikker[forsetar á Tónlist] segja samtaka:“Við gætum reint að halda góðgerðartónleika.”

Goat[forseti á Íþróttir]:“Ég get sent snjóbretta og skíðagaura upp í fjöll að leita af Mizzeeh.”

BOSS[forsetinn á Tölvur og tækni]:“Ég get látið setja vírus í tölvurnar hjá geimverunum.”

Pottlok[forseti á Mótorsport]:“Ég skal sjá um að útvega öll faratæki, ég get reddað concorde flugvélum, ”monster trucks“, Ferrari og jafnvel líka skipum.”

JReykdal:“Mér líst vel á framtak ykkar.
Xavier skamtar pening.
Dagfari, roadrunner og sikker sjá um góðgerðarmál.
Pottlok sér um öll farartæki.

Devotion þú hefur viku til að þjálfa og skipa her, eftir viku þá gerum þá ráðumst við á geimverurnar, þar er að segja ef þær verða fundnar þá.
Þú*leggur mikla áherslu á þú og bendir á Devotion* berð alla ábyrgð á hernum, það ert þú sem þarft að fara í hús og láta vita af því að þessi eða þessi hafi dáið en vonandi þá missum við ekki eina manneskju.

Ég læt ykkur vita símleiðis hvenær næsti fundur verður svo verið ALLTAF með símann ykkar á ykkur og símboðann.”