Þetta er nú reyndar bara ritgerð fyrir skólann eða saga, kannski allir skólar geri svona það veit ég ekki. En annars skemmti ég mér svo vel við að skrifa þessa sögu og var mjög ánægð með hana sem varð til þess að ég sendi hana inn =)


Ég er á færibandinu, glæný og ekkert er komið í mig. Ég fer áfram eftir bandinu ásamt mörgum þúsundum annarra dósa. Það er hellt kóki í mig og mér er lokað. Við erum settar margar saman í kassa og síðan er vörubíll fylltur af einmitt svona kössum eins og ég er í.
Ég gleymi að segja hver ég er, ég er 500 ml. ál kókflaska (Coca cola) ég er sko ekta kók, ekkert diet eða light. Við keyrðum allar saman í trukknum, ég var frekar lengi í honum. Endaði síðan í einhverri sjoppu lengst austur á landi. Þar var ég sett aftast í röðina af öllum flöskunum, enda stóð ég nokkrar vikur í kælinum þar. Á þessum vikum sá ég allar tegundir fólks, stundum voru unglingar á ferðalagi, stundum vegagerðarmenn, stundum fólkið úr bænum sem sjoppan var í, en svo kom það versta, fjölskyldur með lítil börn. Ég sá þau stundum drekka úr flöskunum og þau slefuðu ofan í flöskuna og eyðilögðu algerlega kókið enda vildi engin okkar elda hjá þessum fjölskyldum. Því miður voru sumar okkar heppnar en aðrar ekki alveg jafn heppnar.
En loksins eftir mikla bið eftir réttum kaupanda kom hann, eða þau. Þetta var ungt par á ferð um landið. Þau keyptu mig og voru ekki lengi að klára allt innihaldið, því miður. Á meðan það var ennþá kók í mér rifust þau um síðasta sopann. En um leið og ég varð tóm var ég beygluð og mér kastað aftur í, þar fékk ég að dúsa restina af ferðinni. Sem betur fer var þetta ekki stutt ferð hjá þeim. Núna get ég gortað af því að hafa komið á flesta staði landsins. Fyrsta skipti sem ég fór í bíl var það í stóra vörubílnum og þá vissi ég ekkert hvar ég var. En í bíl unga parsins sá ég miklu, miklu meira en ég hafði nokkurn tíma séð. Ég sá fossa, tjaldstæði, kindur, hesta og kýr og auðvitað margt, margt fleira.
Eftir um það bil tvær vikur í aftursæti bílsins fann lítill strákur mig. Hann bað ungu konuna um að fá að eiga mig og hún sagði já um leið, greinilega fegin að losna við mig. Strákurinn tók mig með sér heim og setti mig inn í einhverskonar geymslu. Þar lá ég í poka með mörgum öðrum flöskum, nema hvað sumar voru úr plasti aðrar úr gleri og svo nokkrar úr áli. Þær höfðu líka borið mismunandi innihald. Þar sá ég það að það eru til miklu fleiri flöskur en kókflöskur. Þær geta verið með gosvatni, appelsíni,malti,víni og mörgum fleiri drykkjum.
Eftir langan tíma í pokanum kom ný kona sem ég hafði ekki séð áður. Hún rótaði í pokanum og tók mig svo upp muldrandi “þessi er góð”. Síðan fór ég með henni út í bíl og næsta dag inn í stóra byggingu. Þegar svolítið var liðið á daginn tók hún mig upp og hélt á mér fyrir framan marga unglinga. Hún sagði þeim að þau ættu að skrifa sögu mína. Eins og þau kunni hana hugsaði ég með mér.