Ég hef aldrei séð hann áður og veit ekki af hverju hann er að elta mig.

Hann sér mig detta og hleypur á eftir mér. Ég hleyp eins hratt og ég get. Hvaðan kom þessi veggur. Það er engin undankomuleið. Hvað á ég að gera? Hann labbar uppað mér og segir: " Loksins, loksins hef ég fundið þig. ég hef verið að leita af þé…. Ég þýt framhjá honum, hann er kominn með byssu og hann hleypir af. Fjúff ég rétt slepp en hvernig er þetta er enginn útgönguleið úr þessu húsi eða hvað.

Hann nálgaðist mig hratt og ég get ekki hlaupið meira. Ég hoppa bakvið kassa og vona að hann sjái mig ekki. En nei hann sá mig og lokar mig úti í horni hjá kassanum. Hann segist hafa beðið eftir þessu tækifæri í mörg ár. Svo skýtur hann. Skotið hittir mig beint í magann, ég lippast niður og veit að ég á eftir að deyja. Maðurinn labbar í burtu og skilur mig einan eftir.
Allt hefur enda, pylsa hefur tvo.