Mér dreymdi að við værum saman og vorum hamingjusöm. Þú elskaðir mig og ég elskaði þig.
Þetta var frábært, en þá sá ég stelpu. Þessi stelpa var dökkhærð og kallaði til mín með augum sínum.
Þessi stelpa heillaði mig , og það var eins hún væri fyrsta stelpan sem ég hafði nokkurn tímann séð. Það var mjög fljótt í það að við fórum að vera saman. Það var eins sæla væri varanlegt ástand hjá mér, en það skrýtnasta var að þú varst enn til staðar. Þú horfðir á okkur faðmast og kela. Hún hélt utan um mig og mér leið æðislega, en þá sá ég hverning þú varst nakin andlega og sorgmædd. Þú sagðir að ég þyrfti að velja milli þín og hennar. Ég valdi hana….. af hverju ?? Ég er ekki alveg viss., kannski á þessu augnabliki, þá elskaði ég hana meira, ef það var virkilega hægt að elska meira. Ég elskaði þig svo mikið. Þú varst skiljanlega mjög sár. Ég og hún vorum fullkomin saman og allt lék í lyndi. Hún var eitthvað svo fullkomin , eða eins nálægt því og hægt er. Hún elskaði mig endlaust og sæluvíma virtist vera vera orðið varanlegt ástand hjá okkur báðum. Ég sá hverning þú horfðir á okkur og ég leitaði til þín. . Hjartað mitt þoldi ekki að sjá þig svona. Tárin þín brutust fram og ég hélt þú myndir kafna úr tárum.
Ég valdi þig, hún var sár en skildi mína ákvörðun og elskaði mig enn. Það leið ekki langt til að ég fór að vera með annari stelpu, sem var svo sannarlega handa mér. Hún leit út alveg eins og hina sem ég elskaði og þráði enn að vera með . Ég fór að vera með þeim báðum. Við lágum þrjú saman alla daga í alsælu og laus við allar áhyggjur. Þú varst allt í einu komin þarna líka, þú hafðir ekki gleymt mér. Þú elskaðir mig, en þessi svipur …… Ég gleymi honum aldrei. Það var eins og fugl sem hafði týnd vængum sínum. Með tárvotum augun og varst niðurbrotin. Það var svo ósanngjarnt, því við þrjú vorum held ég hamingjusamasta fólkið í heiminum. Við höfðum uppgötvað hið sanna ást. Ég leitaði til þín aftur í von um að þú gætir verið með. Að hugsa sér…. Við fjögur saman ….. alltaf…. Þú neitaðir og hvíslaðir: Bara þú … bara við tvö. Þú gast ekki þolað það að deila mér. Ég þurfti að velja á milli ykkar. Hvort á ég að hætt að sjá eða hætta að heyra??? Þetta var svo erfið ákvörðun. Ég valdi það að vera með hinum. Að vera þrjú saman. Þú varst niðurbrotin og horfin í hyldýpið. Og ég uppgötvaði eitt… Við vorum ekki þrjú saman….. Hún hafði alltaf bara verið ein manneskja. Ég bara valdi hana og særði þig.
Through me is the way to the sorrowful city.