Eitt sinn var lítill tannbursti sem átti ekkert nafn og var því
bara kallaður Tannbursti. Dag nokkurn var Tannbursti í daglegu ferð
sinni niður á lækjartorg að bursta tennurnar hjá rónunum þegar hann
sá ein fallega. Hann nam staður og gekk hinum megin á götuna þar
sem hún var og spurði hana um nafn. Birta sagðist hún heita og
spurði hvort hún ætti að þekkja hann. Tannbursti fór í hnút og
reyndi að koma neii út úr sér án árangurs. Flissaði Birta þá
aðeins og svo minntist á að þetta væri allt í lagi og hvort hann
vildi ekki gang með henni. Hann kinkaði kolli og þau löbbuðu áfram.
Hún talaði og talaði alla leiðina heim til sín, en Tannbursta var
alveg sama því hann var bara að hlusta og horfði á hana heltekinn.
Vikur liðu og Bursti og Birta urðu góðir vinir svo einn dag bauð
Bursti Birtu á tónleika með Kurt Cobursta og hún var himin lifandi
og sagði að það væri engin spurning að hún kæmi. Þegar
tónleikarnir voru hálfnaðir og Kurt var í hléi dróg Tannbursti
Birtu fram og gaf henni box með hálsfesti. Hún sagðist ekki geta
þegið þetta því það væri annar sem hefði nafn, Heimur, og hann væri
með Pickup bíl væri mannlegur og væri með vinnu. Tannbursti gekk
leiður á dyr og gekk niður að Tannway skemmtistaðnum og settist
niður að fá sér í glas þegar hann kom auga á annan niðurlútan
bursta. Hann kom að honum og spurði hvað væri að honum. Æi þú veist
þessar konur og byrjaði að segja frá sömu sögunni og Tannbursti
hafði að segja frá. Tannbusti ætlaði ekki að trúa eigin eyrum að
annar Tannbursti væri þarna að segja sömu sögu og hann. Svo sagði
Tannbursti að hann hefði lent í því sama og þeir ættu að tala við
frænda sinn Don Tannburstos. Don sagði þeim að taka hér sitthvorn
spreybrusan og gera eins og hann segði þeim og hvíslaði hann
einhverju sem enginn veit hvað er í eyrun á þeim. Nú fóru þeir
báðir af stað og framfygldu skipunum sínum. Að verkinu loknu
settist Tannbursti fyrir utan hús Heimi. Svo heyrðist öskur
AHHHH…. Heimur fann að það hefði einhver spreyað “Queer” yfir
allan pickup bílinn hjá sér með vassheldri málningu og ekki var
stelpan ánægð með svona bíl að keyra í. Hann frétti síðan seinna að
þetta hefði gengið fullkomlega hjá hinum Tannburstanum líka.