Ég er allir.
!Ég lít upp frá skjánum í tölvuveri Háskóla Íslands og horfist í augu við sjálfan mig. Í elífð sekúndubrotsins horfist ég í augu við dökkhærða stelpu og um tíma vitum !*við bæði, innst inni, að !*við erum eitt.

*Ég sest niður og kem mér fyrir, framan við óvirka tölvu, á meðan *ég spjalla á frönsku við +mig sem er að vinna í verkefni, sitjandi við hliðina á !mér sem er að skrifa smásögu á huga.is og skilur varla orð af því sem *+við erum að segja.

+Skyndilega fer síminn titra og ég tek hann upp og sé að =ég er að reyna að ná í +mig. =+Við ræðumst stuttlega við því +ég þarf að drífa mig með verkefnið.

!Ég horfi í kringum !mig og velti fyrir !mér hvort +ég og *ég eru fyrir eða eftir !mig í hinni löngu röð lífa minna.

!ég elska ~mig en ~ég er með ^mér.

Hve mörg líf á ég eftir?
%MYND coollogo_com.26794102.gif%