Sýru saga númer 1, lofa því, reyndar hef ég gert eina sýrðari og hún kemur á næstunni

Eins og ég sé, þó ég sjá ekki neitt því ég er með lokuð augun og stend í dimmu húsasundi. En hvað það, beljan, nei það kemur ekki málinu við. Ég stóð þarna í húsasundinu með bjór í höndinni því mér fannst kókið svo helvíti gott. Já beljan, nei, ég er að rugla hún kemur ekki inn í söguna strax. Ég stóð semsagt þarna í húsasundinu með lokuð augun með hamborgara í höndinni og samt, beljan. Ég var með lokuð augun. Þannig að ég gat ekki verið morðinginn. Þarna stóð ég semsagt á bekknum í almenningsgarðinum og horfði með bláu tæru augunum mínum á fiskan sem liðu í gegnum grasið fyrir ofan höfuðið á mér, ég var með lokuð augun og skjala tösku fulla af beljukjöti sem Gulli seldi mér. Já þarna kemur beljan inn í söguna, því ég fékk beljukjöt, ekki nautakjöt. Og hvað átti ég þá að hafa í matinn?