Hann dúxaði úr tölvuskóla, sem leiddi til þess að hann var ráðinn hjá stóru tölvufyritæki, sem leiddi til þess að hann fékk vel borgað, sem leiddi til þess að hann varð ríkur, sem leiddi til þess að hann keypti sér sport bíl, sem leiddi til þess að hann ók alltaf hratt, sem leiddi til þess að hann lenti í árekstri, sem leiddi til þess að bílinn eyðilagðist, sem leiddi til þess að hann varð að taka strætó í vinnuna, sem leiddi til þess að hann kom stundum seint, sem leiddi til þess að hann var rekinn, sem leiddi til þess að hann fór að drekka, sem leiddi til þess að hann eyddi öllum peningum í vín, sem leiddi til þess að hann missti húsið sitt, sem leiddi til þess að hann gerðist róni, sem leiddi til þess að hann dó úr kulda á götunni, allt af því að hann dúxaði úr tölvunámi.