Ég vaknaði um morguninn leit á þig og læddist fram ég vildi ekki vekja þig því ég mundi ekki nafnið þitt, ég leit í kringum mig frammi allt var mjög stórt þar og hérna voru margar líkar hurðir í röð. Ég fann hurð merkta WC og fór þar inn og þvoði mér í framan. Já Óli hann heitir Óli held ég. Ég fór aftur fram, hvaða herbergi á hann eiginlega ég valdi bara eina hurðina og gekk þar inn. Hann bauð mér góðan dag og bauðst til að hlíja mér ef ég kæmi uppí til hans ég stóðst ekki freistinguna enda var um mjög fallegan strák að ræða og ég þakkaði guði fyrir að hafa farið inn í rétt herbergi.
Um það bil hálftíma síðar kom annar strákur inn þeir voru mjög líkir kannski þeir séu tvíburabræður hugsaði ég. Strákurinn byrjaði á því að segja að það væri líklega hálf nakin stelpa að labba um götur bæjarins því hann hefði funndið kvk. föt inni hjá sér, en hann bara myndi ekkert eftir kvöldinu. Þá varð mér það ljóst ég leit í kringum mig en fann ekki fötin mín svo ég bað strákinn um að fylgja mér inn til sín. Við vorum öll þrjú skömmustuleg og þegar við gátum talað aftur byrjuðu strákarnir að rífast um það hvor þeirra hafi verið meiri hálfvitinn svo ég bara flúði og vonaðist til að lenda ekki í þessu aftur.Ég spyr enþann dag í dag alla stráka að því hvort þeir eigi bræður……………
Ég tala af reynslu: