Það er nú alveg magnað hvað hvernig sumar stelpur eru. Fullkomin húð, hárið sem virðist alltaf vel greitt og láta aldrei sjá sig í sömu fötunum tvisvar. Ég skil eiginlega ekki hvernig þær fara að þessu. Þær sitja þarna og fylgjast stíft með kennaranum. Annað en ég sem get ekki hætt að dást af þessum postulínsdúkkum sem virðast hafa það eitt hlutverk að gera menn eins og mig brjálaða.
Það er sérstaklega þessi í græna jakkanum. Það er óþolandi þegar hún lítur á mig, en þetta á samt eiginlega við þær allar þrjár.
Ég held að þær viti alveg að ég er horfa á þær. Þær segja ekki neitt en það er eins og það sé þegjandi samkomulag milli þeirra um eitthvað, sem ég veit samt ekki hvað er. En ég er viss um þær tali um mig. En hvað ætli þær séu að segja?
Shitt, þessi í grá jakkanum var að líta til mín, alveg beint á mig. Þetta er óþolandi. Ég meina, hvað er málið. Og ég sem á kærustu og er að pæla í svona hlutum. Ég er svo mikill fáviti.
Nei bíddu, þessi í rauða var að gefa gaurnum sem situr hliðin á mér auga og brosti til hans. Fokk eru þær kannski bara að pæla í honum? En bíddu, hvað er kennarinn að raula, er próf í næstu viku? Nei hjúkk, ekki fyrr en í þarnæstu.
En hvernig ætli það væri að eiga eina af þessu gellum sem kærustu? Og hverja þeirra þá… Þessa í gráa, pottþétt. Þessi í græna er kannski flottari, og þessi í rauða er geðveikt getnó, en þessi í gráa, hún er bara svo sæt. Hún er svona stelpa sem maður gæti örugglega bara liðið vel með án þess að vera stressa sig alltaf á því hvað á segja og svoleiðis rugl. Ég gæti eldað góðan mat handa henni og gefið henni gjafir. Hver veit nema að við myndum giftast eignast börn saman og allt. En samt, hún myndi örugglega halda framhjá mér, hún er þannig típa held ég, svona stelpa sem þrífst á athygli karla. Og þá þyrfti ég að borga meðlög, ég nenni því ekkert að standa í því. Krakkarnir yrðu samt fallegir, en væri það þess virði… ég veit það ekki.
Bíddu, er tíminn búinn? Allar að taka saman. Lesa kafla 3. fyrir næsta tíma já ok. Er hún að koma til mín, allar þrjár? Shitt, hvernig er hárið á mér, og með bólu á hökunni! Af öllum fokking dögum þurfti þetta að gerast núna. Hvað á ég að segja?
- Gunni ertu á bíl?
- Já, vantar þér far?
- Það væri frábært, ég á nefnilega að mæta á æfingu klukkan tvö.
- Sjálfsagt.
Sumir strákar eru bara heppnari en aðrir. Þeir þekkja allar flottu píurnar og eru alltaf svalir á því. Eins og þetta fokking fífl Gunni.